Á morgun, laugardag fer fram þriðja umferð Íslandsmótsins í kvartmílu. Nítján ökutæki eru skráð til leiks og má búast við skemmtilegri keppni á kvartmílubrautinni í Kapelluhrauni í Hafnarfirði.
Í hléi og eftir keppni verður driftsýning á hinni nýju hringakstursbraut sem kláruð var í vor. Þar má búast við miklum reyk og fjöri. Team Wild Dogs frá Danmörku verða með sérsmíðaðan driftbíl á þessari sýningu og einnig verða nokkrir öflugir íslenskir driftarar á brautinni. Vonast er til þess að sem flestir komi og njóti alls þess sem fyrir augu ber á þessum viðburðarríka degi bílaáhugamanna.
Dagskrá dagsins er sem hér segir:
10:00 Mæting keppenda
10:00 Skoðun hefst
10:30 Pittur lokar
11:00 Skoðun lýkur
11:10 Fundur með keppendum
11:30 Æfingarferðir hefjast
12:50 Æfingarferðum lýkur
13:00 Tímatökur hefjast
14:00 Tímatökum lýkur
14:15-14:50 Driftsýning á hringakstursbraut Team Wild Dogs og fleiri driftsnillingar
14:50 Keppendur mættir við sín tæki
15:00 Keppni hefst
16:00 Keppni lýkur - Kærufrestur hefst
16:15-17:00 Driftsýning á hringakstursbraut Team Wild Dogs og fleiri driftsnillingar
16:30 Kærufrestur liðinn
17:00 Verðlaunaafhenting á pallinum
Þriðja umferð kvartmílunnar á morgun
