Umfjöllun: Ísland - Slóvenía 30-31 | Svekkjandi tap gegn Slóvenum

Líkt og íslenska liðið var það slóvenska ósigrað fyrir leik dagsins. Slóvenar unnu fjóra leiki og gerðu eitt jafntefli í riðlakeppninni gegn Frakklandi og lögðu Króatíu og Noreg í útsláttarkeppninni.
Íslenska liðið byrjaði leikinn af miklum krafti og komst í 4-0 eftir aðeins fjögurra mínútna leik. Neyddist þjálfari slóvenska liðsins til þess að taka leikhlé en íslenska liðið hélt leiknum í höndum sér í fyrri hálfleik.
Voru hraðaupphlaupin að virka eins og í sögu og varnarleikurinn hélt vel fyrir framan Grétar Atla í íslenska markinu. Tókst íslenska liðinu fyrir vikið að halda öruggu forskoti allan fyrri hálfleikinn og leiddi í hálfelik 15-11.
Það var allt annað að sjá til liðanna í seinni hálfleik en slóvenska liðið komst upp á lagið í sóknarleik sínum um leið og sóknarleikur íslenska liðsins varð stirðari.
Smátt og smátt söxuðu Slóvenar á forskot íslenska liðsins og náðu að jafna metin í fyrsta sinn í leiknum þegar fjórar mínútur voru til leiksloka.
Virtust íslensku strákarnir einfaldlega rotaðir á fimm mínútna kafla sem slóvenska liði hafði betur 5-1 og náði tveggja marka forskoti þegar tvær og hálf mínúta voru eftir.
Strákunum okkar tókst að minnka muninn í tvígang en alltaf náðu leikmenn slóvenska liðsins að svara með mörkum og gafst einfaldlega ekki tími til þess að jafna metin.
Munu Strákarnir okkar því leika upp á bronsið á morgun gegn Spánverjum eða Frökkum en þeir voru grátlega nálægt því að komast í úrslitin. Vantaði herslumuninn í varnarleik liðsins í seinni hálfleik þegar uppi er staðið.
Hákon Styrmisson var atkvæðamestur í íslenska liðinu með sjö mörk en skyttan Egill Magnússon bætti við öðrum sex. Í markinu varði Grétar Ari Guðjónsson 15 skot af 45, alls 33,3% markvarsla.
Textalýsingu frá leiknum má lesa hér fyrir neðan.
60:00 Þetta var grátlegt! Töpum með eins marks mun. Slóvenar brjóta sér leið í gegnum miðja vörn Íslands og koma muninum aftur upp í tvö mörk þegar hálf mínúta er til leiksloka. Íslenska liðið nær að minnka muninn á ný en nær ekki að stela boltanum á þeim tíu sekúndum sem voru til leiksloka. Ísland 30-31 Slóvenía.
59:00 Íslenska liðið minnkar muninn en Slóvenar bæta við öðru eftir langa sókn. Egill minnkar aftur muninn, ein mínúta eftir.
57:30 Tapaður bolti og slóvenska liðið heldur í sókn. Egill Magnússon liggur eftir en hann fékk höfuðhögg við að taka frákast af skoti slóvenska liðsins.
57:00 29-27 fyrir Slóveníu og Einar tekur leikhlé. Það er enn nægur tími en íslenska vörnin þarf að fara að vakna til lífsins. Slóvenar búnir að setja átján mörk hérna í seinni.
56:00 Útsendingin ekki upp á sitt besta rétt eins og íslenska liðið. Slóvenska liðið komið yfir í fyrsta sinn í leiknum þegar fjórar mínútur eru eftir. Koma svo strákar!! Ísland 27-28 Slóvenía.
53:30 Slóvenar að jafna metin í fyrsta sinn í leiknum. Ísland búið að leiða frá fyrstu mínútu. Ísland 26-26 Slóvenía.
52:00 Þvílík mínúta. Töpum boltanum en Grétar bjargar íslenska liðinu gegn hraðaupphlaupi. Íslenska liðið svarar með hraðaupphlaupi og munurinn kominn í tvö. Ísland 26-24 Slóvenía.
51.00 Munurinn kominn í eitt mark og Einar tekur leikhlé. Ísland 25-24 Slóvenía.
50:00 Tíu mínútur eftir. Gegn Noregi og Brasilíu keyrðu íslensku strákarnir yfir andstæðinga sína á lokamínútunum.
49:00 Úff. Hákon fékk dauðafæri til þess að koma muninum aftur upp í fjögur mörk. Galopinn í horninu en markmaðurinn ver glæsilega og Slóvenar svara með marki. Munurinn aftur í tvö mörk. Ísland 25-23 Slóvenía.
47:00 Munurinn kominn aftur niður í tvö mörk. Ísland manni fleiri næstu tvær mínúturnar.
45:00 Erum í smá vandræðum með beinu útsendinguna, höktir töluvert en við reynum að uppfæra hér eins og við getum.
41:00 Jæja loksins kemur markvarsla. Erum manni fleiri og náum aftur þriggja marka forskoti. Höfum hleypt löndum nálægt okkur áður á mótinu en alltaf keyrt á mótherjana á lokamínútum leiksins. Ísland 21-18 Slóvenía.
40:00 Úff. Munurinn kominn niður í eitt mark. Koma svo strákar!
39:00 Strákarnir þurfa að vakna í varnarleiknum. Slóvenar komnir með sex mörk eftir níu mínútur. Ísland 19-17 Slóvenía.
37:00 Jæja þá erum við mætt af stað á ný. Slóvenska liðið er búið að minnka muninn niður í tvö mörk. Ísland 18-16 Slóvenía.
30:00 Hálfleikur í Rússlandi og íslenska liðið leiðir með 4 mörkum. Frábær varnarleikur hefur skilað sér í fjölda hraðaupphlaupa hér í fyrri hálfleik og fyrir aftan vörnina hefur Grétar staðið sig vel. Vonandi ná strákarnir að halda þessu áfram í seinni. Ísland 15-11 Slóvenía.
29:00 Óðinn nær að skjótast á milli markmanns og varnarmanns til þess að ná sendingu Grétars og setur boltann í autt netið. Ísland 15-10 Slóvenía.
26:00 Grétar með enn eina markvörsluna. Hefur farið vel af stað í þessum leik og íslenska liðið bætir við marki af línunni. Munurinn kominn aftur upp í fjögur mörk, Ísland 13-9 Slóvenía.
25:00 Það var laglegt. Styrmir stelur boltanum og kemst í hraðaupphlaup. Ísland 11-8 Slóvenía.
24:30 Slóvensk skytta með þrumufleyg beint í andlitið á Grétari sem virðist hálf vankaður fyrstu sekúndurnar en ætlar að halda leik áfram.
24:00 Glæsilegt. Náum að stöðva blæðinguna, Ómar Magnússon með langskot niðri í hornið. Ísland 10-8 Slóvenía.
22:00 Vörn Slóvenana komin af stað. Tveir tapaðir boltar og Slóvenar svara með tveimur mörkum. Þá verður íslenska liðið manni færri næstu tvær mínúturnar. Ísland 9-7 Slóvenía
20:00 Einar Guðmundsson, þjálfari íslenska liðsins, tekur leikhlé. Segir strákunum að róa sig örlítið í sóknarleiknum en hann getur ekki kvartað undan varnarleiknum og markvörslu hingað til.
19:00 Munurinn fjögur mörk þegar ellefu mínútur eru til hálfleiks. Grétar Atli er kominn af stað og ver hvert skotið á fætur öðrum. Ísland 9-5 Slóvenía.
17:00 Enn eitt hraðaupphlaupsmarkið hjá íslenska liðinu og Grétar fylgir því með frábærri markvörslu.
15:00 Varnarleikurinn og markvarslan til fyrirmyndar í upphafi leiks. Slóvenar aðeins búnir að setja fjögur mörk á fyrstu fimmtán mínútum leiksins. Ísland 7-4 Slóvenía.
12:00 Tapaður bolti hjá slóvenska liðinu og að vanda er Óðinn mættur í hraðaupphlaup. Hann einfaldlega klúðrar ekki svona færum. Ísland 7-4 Slóvenía.
10:00 Tvö varin skot í röð hjá Grétari. Það væri frábært ef hann færi í gang hérna. Svo kemur þriðja skotið í röð strax í næstu sókn. Meira af þessu takk fyrir!
08:00 Strákarnir að spila fasta vörn sem slóvenska liðið á í vandræðum með. Reyna erfitt skot og Grétar Atli tekur sinn fyrsta bolta í markinu. Ísland 6-3 Slóvenía.
06:00 Jæja þá tekst slóvenska liðinu að komast á blað en íslenska liðinu tekst að svara með marki úr opnum leik. Egill fer vel af stað þrátt fyrir að vera með gat á hausnum. Slóvenar svara með tveimur mörkum. Ísland 5-3 Slóvenía
04:00 Þjálfari tekur Slóveníu tekur leikhlé enda íslenska liðið að keyra yfir Slóvenana í upphafi leiks. Frábær byrjun. Ísland 4-0 Slóvenía.
03:30 Egill Magnússon fékk gat á hausinn í gær og er vel vafinn inn. Kemur ekki að sök, hann stelur boltanum og íslensku strákarnir keyra í þriðja hraðaupphlaupið! Þvílík byrjun hjá íslensku strákunum. Óðinn með tvö, Hákon með eitt og Egill með eitt.
02:00 Glæsileg byrjun. Vörnin byrjar af krafti, hávörnin tekur fyrsta boltann og stolinn bolti strax í kjölfari þess. Fáum tvö hraðaupphlaup í kjölfari þess. Ísland 2-0 Slóvenía.
01:00 Þá erum við farin af stað. Strákarnir eru í hvítu búningunum og halda í sókn. Fá tvö góð tækifæri í fyrstu sókn en markmaður slóvenska liðsins ver vel.
Fyrir leik: Strákarnir taka vel undir þjóðsönginn, alvöru menn!
Fyrir leik: Dómaraparið í dag kemur frá Argentínu.
Fyrir leik: Jæja þá er beina útsendingin komin aftur á stað. Hálftími í leik.
Fyrir leik: Íslenski fáninn í stúkunni. Þjálfari liðsins sagði mér að þetta væri afi Arnars og að hann hefði litið við í skoðunarferðir með liðinu. Alvöru maður sem ferðast alla leiðina með liðinu og sendum við okkar bestu kveðjur til hans.
Fyrir leik: Danmörk og Svíþjóð voru að ljúka leik og nú koma strákarnir okkar út á gólfið í upphitun. Menn hita upp með því að halda bolta á lofti.
Fyrir leik: Óðinn Ríkharðsson hefur vakið verðskuldaða athygli á mótinu en hann er markahæstur þrátt fyrir að vera ekki vítaskytta íslenska liðsins. Hefur hann verið eins og elding í hraðaupphlaupum liðsins.
Fyrir leik: Þetta er í annað sinn sem Einar kemst í undanúrslit með lið sitt en árið 2009 komst íslenska liðið í undanúrslit. Voru Aron Pálmarsson og Ólafur Guðmundsson valdir í úrvalsliðið á því móti.
Fyrir leik: Einar Guðmundsson, þjálfari liðsins, fór fögrum orðum um liðið í samtali við Fréttablaðið í gær en hann sagði strákana sína einstaklega vel gefna og að það væri sannkallaður draumur að þjálfa þá.
Fyrir leik: Jæja góðan daginn. Það er sannkallaður stórleikur framundan hjá íslenska liðinu sem kemst í úrslitaleikinn með sigri á Slóveníu.
Tengdar fréttir

Strákarnir ætla sér stóra hluti á þessu móti
Nítján ára landsliðið í handbolta byrjar vel á HM í Rússlandi en fyrr í sumar unnu strákarnir sigur á Opna Evrópumótinu í Gautaborg.

Slóvenar mótherjar Íslands í undanúrslitunum
Íslenska liðið mætir því slóvenska í undanúrslitum á HM U19 árs í handknattleik á fimmtudaginn en þetta varð ljóst eftir sigur Slóvena á Noregi rétt í þessu.

Framkvæma allt sem ég segi
Þjálfari U-19 ára landsliðsins í handbolta segist vera stoltur af strákunum sem hafa slegið í gegn í Rússlandi. Hann segir sína menn tilbúna til þess að taka að sér stór hlutverk hjá íslenska landsliðinu í framtíðinni.

Grétari Ara hrósað af handboltagoðsögn
Andrey Lavrov, fyrrum markvörður í rússneska landsliðinu, segir að Grétar Ari Guðjónsson sé einn þriggja markavarða sem hafi hrifið sig á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi.

Stuttbuxna-Grétar á eitt af bestu tilþrifunum á HM | Myndband
Íslenska 19 ára landsliðið í handbolta hefur byrjað vel á HM í Rússlandi og annar markvörður íslenska liðsins hefur vakið mikla athygli fyrir bæði góða markvörslu og sérstakan klæðaburð.

Óðinn og Ómar Ingi báðir meðal fimm markahæstu manna á HM
Óðinn Rikharðsson og Ómar Ingi Magnússon hafa skorað flest mörk allra íslensku strákanna í fyrstu fjórum leikjum íslenska 19 ára landsliðsins á HM í Rússlandi.

Sigur á Suður-Kóreu og átta liða úrslitin framundan
Íslenska handboltalandsliðið skipað leikmönnum nítján ára og yngri er komið í átta liða úrslitin á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Rússlandi eftir sex marka sigur, 34-28, á Suður-Kóreu.

Einar Andri: Árangurinn samspil margra þátta
Einar Andri Einarsson, þjálfari Aftureldingar í Olís-deild karla, segir að ef allt smellur hjá U19-ára landsilðinu í handbolta gæti liðið farið alla leið í úrslit á heimsmeistaramótinu í Rússlandi.

Umfjöllun: Ísland - Brasilía 32-27 | Glæsilegur lokakafli íslenska liðsins réði úrslitunum
Íslenska U19 árs landsliðið tryggði sæti sitt í undanúrslitum heimsmeistaramótsins með sigri á Brasilíu í dag en leikurinn vannst á glæsilegum lokakafla.