Juventus hóf titilvörnina á Ítalíu með tapi gegn Udinese, en eina mark leiksins kom í síðari hálfleik. AC Milan og Napoli töpuðu einnig sínum leikjum.
Juventus tapaði 0-1 gegn Udinese á heimavelli, en Juventus tapar vanalega ekki á heimavelli. Cyril Thereau skoraði eina mark leiksins á 78. mínútu og ekki sú byrjun á titilvörninni sem Juventus hafði óskað sér.
AC Milan tapaði fyrsta leiknum undir stjórn Sinisa Mihajlovic, en þeir töpuðu 2-0 á útivelli gegn Fiorentina. Marcos Alonso skoraði frábært mark úr aukaspyrnu og Josip Ilicic bætti við öðru úr vítaspyrnu.
Napoli tapaði 2-1 gegn Sassulo á útivelli. Marek Hamsik kom Napoli yfir, en Antonio Floro Flores jafnaði metin fyrir Sassulo og Nicola Sansone tryggði Sassulo sigurinn sex mínútum fyrir leikslok.
Stjörnubanarnir í Inter unnu Atlanta með marki Stevan Jovetic í uppbótartíma og Sampdoria skellti Carpi 5-2, en staðan var 5-1 í hálfleik.
Öll úrslit dagsins:
Juventus - Udinese 0-1
Empoli - ChievoVerona 1-3
Fiorentina - AC Milan 2-0
Frosinone - Torino 1-2
Inter - Atlanta 0-0
Palermo - Genoa 1-0
Sampdoria - Carpi 5-1
Sassulo - Napoli 2-1
Juventus hóf titilvörnina á tapi á heimavelli
Anton Ingi Leifsson skrifar

Mest lesið







Real Madrid vill fara í viðræður við Liverpool um Trent
Enski boltinn


Valdi fjórar verstu hornspyrnur ÍBV: „Þessi var helvíti slæm“
Íslenski boltinn

Ráðherra bað stuðningsmenn Liverpool afsökunar
Enski boltinn