Sala á nýjum fólksbílum frá 1. til 31. ágúst jókst um 69,8% en nýskráðir fólksbílar á þessu tímabili voru 842 bílar á móti 496 í sama mánuði 2014 eða aukning um 346 bíla.
41,7% aukning er í nýskráningum frá 1. janúar til og með 31. ágúst miðað við sama tímabil á fyrra ári en samtals hafa verið nýskráðir 11.533 fólksbílar það sem af er ári.
Áframhaldandi aukning er í nýskráningum fólksbíla og er aukningin nú aðallega til einstaklinga og fyrirtækja en búið er að afgreiða megnið af bílaleigubílum sem afgreiddir verða á árinu.
Um jákvæða þróun er að ræða með tilliti til öryggissjónarmiða og mengunar þar sem Ísland er enn í efstu sætum í Evrópu hvað varðar meðalaldur fólksbíla segir í frétt frá Bílgreinasambandinu.
Aukning í bílasölu 70% í ágúst
