Rúrik fékk sínar fyrstu mínútur frá því í ágúst Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. september 2015 17:33 Íslenski landsliðsmaðurinn Rúrik Gíslason. Vísir/Getty
Íslenski landsliðsmaðurinn Rúrik Gíslason fagnaði góðum útisigri með liði sínu Nürnberg í þýsku b-deildinni í kvöld. Nürnberg sótti þá þrjú stig til Kaiserslautern og vann 3-0 sigur. Kaiserslautern verður Íslendingalið um áramótin þegar Jón Daði Böðvarsson gengur til liðs við liðið. Patrick Ziegler, leikmaður Kaiserslautern, fékk rauða spjaldið á 18. mínútu og Nürnberg var því manni fleiri í 72 mínútur. Even Hovland skoraði fyrsta markið á 42. mínútu og þeir Alessandro Schöpf og Guido Burgstaller bættu síðan við mörkum í seinni hálfleiknum. Sigurinn skilaði Nürnberg upp í fjórða sæti deildarinnar en liðið hefur náð í þrettán stig út úr fyrstu átta leikjum sínum. Rúrik Gíslason hefur þurft að bíða þolinmóður á bekknum í síðustu leikjum en fékk nú að spila síðustu níu mínúturnar. Þetta voru fyrstu mínútur hans í deildinni síðan í leik á móti Fortuna Düsseldorf í lok ágúst. Rúrik hafði setið á bekknum í fyrstu tveimur leikjum Nürnberg eftir landsleikjahléið eftir að hafa byrjað fjóra af fyrstu fimm leikjum tímabilsins. Rúrik kom inná fyrir Guido Burgstaller í kvöld en sá hinn sami hafði skorað þriðja og síðasta mark Nürnberg í leiknum.
Þýski boltinn Mest lesið Elísa stórbætti metið í hundrað kílómetra hlaupi: „Mér líður furðuvel“ Sport Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Enski boltinn „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Körfubolti Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Enski boltinn Lars Lagerbäck lenti í slysi og kemur ekki til Íslands Fótbolti „Margir sem voru tilbúnir að koma honum fyrir kattarnef fyrir mig“ Íslenski boltinn Stuðningsmönnum danska liðsins ekki hleypt inn í Svíþjóð Fótbolti „Sagt að mér gæti blætt út“ Sport Frank Mill er látinn Fótbolti Máluðu dvergana sjö í kringum fræga veggmynd af Lamine Yamal Fótbolti Fleiri fréttir Gervigreindin fór illa með mótherja Víkinga „Margir sem voru tilbúnir að koma honum fyrir kattarnef fyrir mig“ Frank Mill er látinn Shearer með skilaboð til Newcastle: Losið ykkur við Isak Natasha með slitið krossband Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Máluðu dvergana sjö í kringum fræga veggmynd af Lamine Yamal Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Hinn óendanlegi leikmannahópur Chelsea Stuðningsmönnum danska liðsins ekki hleypt inn í Svíþjóð Lars Lagerbäck lenti í slysi og kemur ekki til Íslands „Þeir standa fyrir eitthvað annað“ Kári reynir að hjálpa HK upp um deild Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield „Báðir endar vallarins mættu vera betri“ „Skemmtilegra þegar vel gengur“ Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-3 | Létt verk fyrir meistarana Mark Kolbeins svo gott sem gulltryggði sigurinn „Við erum Newcastle United“ Everton að ganga frá kaupum á miðjumanni Chelsea Áhorfendum vísað út af Anfield Orri Steinn fær portúgalska samkeppni Breiðablik og Víkingur vita hverjum þau mæta næst Rashford með sitt fyrsta mark fyrir Barcelona Sjáðu umdeilda vítadóminn og sigurmarkið sem var dæmt af Sjáðu tvennu Sigurðar og snögg svör Víkinga Barist um undirskrift Nunez Tómas Bent seldur til Skotlands Ronaldo vill gera Greenwood aftur að liðsfélaga „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Sjá meira