Íslensku stelpurnar spila rétt hjá landamærum sem heimspressan fylgist vel með Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. október 2015 09:00 Vísir/Vilhelm
Íslenska kvennalandsliðið mætir Slóveníu í dag í þriðja leik sínum í undankeppni EM 2017 en íslensku stelpurnar hafa unnið tvo fyrstu leiki sína í keppninni. Leikurinn fer fram á Lendava Sports Park leikvanginum í Lendava sem er rúmlega ellefu þúsund manna bær á landsmærum Slóveníu og Ungverjalands jafnframt því að vera ekki fjærri landamærunum Slóveníu og Króatíu. Landamæri Slóveníu við Ungverjaland og Króatíu eru núna pólitískt hitasvæði þar sem straumur flóttafólks frá Sýrlandi liggur nú til Slóveníu eftir að Ungverjar lokuðu landamærum sínum. Flóttafólkið er að reyna komast norður til Austurríkis og Þýskalands og leið þeirra liggur nú í gegnum Slóveníu í stað Ungverjalands áður. Slóvenska kvennalandsliðið spilar þrjá heimaleiki í haust og þeir fóru allir fram á mismundandi leikvöllum. Hinir leikirnir, 3-0 tapleikur á móti Slóveníu í september og 3-0 sigurleikur á móti Hvíta-Rússlandi fyrir viku voru spilaðir allt annars staðar í landinu. Leikurinn við Skota fór fram Ajdovscina í vesturhluta Slóveníu og leikurinn á móti Hvíta-Rússlandi fór fram í Kranj sem er í norðurhluta Slóveníu. Leikurinn við Ísland er hinsvegar spilaður í Lendava sem er alveg austast í Slóveníu við landamærin við Ungverjaland.Leikur Íslands og Slóveníu hefst klukkan 17.00 að íslenskum tíma og verður í beinni textalýsingu hér á Vísi.
Fótbolti Íslenski boltinn Mest lesið Gripið um hreðjar Stefáns Teits: „Þetta er ekki löglegt“ Fótbolti Mætti með myndabók af íslensku leikmönnunum á flugvöllinn Fótbolti Aðstoðarþjálfari Ungverjalands hné niður Fótbolti Sir Mo Farah elti uppi þjófa sem stálu símanum hans Sport Tyson eftir tapið gegn Paul: „Ég dó næstum því í júní“ Sport Markvörður Bayern með krabbamein Fótbolti Ótrúleg mistök þegar Sveindís og Wolfsburg unnu örugglega Fótbolti Meiddi sig eftir misheppnað siuu fagn Fótbolti Dagskráin í dag: Heimir mætir Englendingum á Wembley Sport „Mjög sátt, spennt og stolt að vera hluti af þessu“ Fótbolti Fleiri fréttir Í beinni: England - Írland | Heimir gæti gert enskum grikk Glódís kom Bæjurum á bragðið með hörkuskalla Mætti með myndabók af íslensku leikmönnunum á flugvöllinn Meiddi sig eftir misheppnað siuu fagn Birkir Valur yfirgefur HK Aðstoðarþjálfari Ungverjalands hné niður „Mjög sátt, spennt og stolt að vera hluti af þessu“ Markvörður Bayern með krabbamein Gripið um hreðjar Stefáns Teits: „Þetta er ekki löglegt“ Ótrúleg mistök þegar Sveindís og Wolfsburg unnu örugglega Risasigur hjá Þjóðverjum og stórstjörnurnar skoruðu fyrir Svía Cecilía hélt hreinu í góðum sigri Markalaust jafntefli tryggði Íslandi úrslitaleik á þriðjudag „Við munum þurfa að finna út úr því vandamáli á morgun“ Ísak Bergmann fær hrós á X: „Åge svelt hann með landsliðinu“ „Spila oftast best þegar ég er reiður“ „Örugglega hræðilegt að horfa á þetta“ „Við vissum að þetta yrði smá hark“ Einkunnir Íslands: Innkoma Ísaks breytti leiknum Aron Einar meiddur af velli eftir tuttugu mínútur Aron Einar miðvörður í Niksic Umfjöllun: Svartfjallaland - Ísland 0-2 | Ísland í spennandi stöðu Sveindís og stöllur með fimm stiga forskot á toppnum Sædís skoraði annan deildarleikinn í röð Sjálfsmark skildi að og strákarnir komnir á næsta stig Van Nistelrooy sækir um stjórastarfið hjá Coventry Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Sárafáir Íslendingar á meðal 4.000 áhorfenda á leik dagsins „Þeir hafa bætt sig frá því síðast en við einnig“ „Menn verða betri með hverju verkefninu sýnist mér“ Sjá meira