Um ræðir lagið Old Skin, af plötunni For Now I Am Winter, sem Ólafur sendi frá sér árið 2013. Er lagið spilað tvisvar í myndinni og á svokölluð soundtracki.
„Við sögðum strax já við þessu, enda frekar hlutlaus Bandarísk stjörnumprýdd kvikmynd, en engin pólitík eða eitthvað sem við viljum ekki tengja okkur við,“ útskýrir Arnór hæstánægður.
Segir hann upphæðirnar sem fáist fyrir að eiga lag í stórum Hollywood myndum ekki aðalatriðið. „Ég spái í raun ekki mikið í því, þar sem upphæðin sem kemur fyrir í tölvupóstinum deilist svo niður í ótal áttir, og þegar hún á endanum kemur til mín, þá lít ég á þetta sem algjöran bónus og geri ekki sérstaklega ráð fyrir honunm. Það að koma tónlistinni sinni áfram á svona viðamikinn snertiflöt, eru raunverulegu launin."

„Ég er býsna ánægður með að nú sé senan aðeins öðruvísi, en lagið er spilað undir þegar persóna Cooper er að rísa upp úr öskustónni,“ segir Arnór léttur í lund.
En hvernig stendur á að tónlist þeirra félaga rati svo iðulega í hendurnar á risa kvikmyndaframleiðendum segist Arnór seint stæra sig af að koma því í kring.
„Ég hreinlega veit það ekki, stundum ramba leikstjórarnir á þetta en svo er Óli náttúrulega mjög duglegur við að koma tónlistinni að,“ bendir Arnór hógvær á að vanda.

Fjallar myndin í grófum dráttum um hrokafullan kokk, Adam Jones, sem hefur átt góðu gengi að faga, allt þar til hann gerir það ekki lengur og allt fer niður á við. Hafandi þrjár Michelin stjörnur á bakinu reynir Jones að koma undir sig löppunum og fer aftur á ról með nýjan veitingastað. Má gera ráð fyrir að býsna spennandi atburðarás í framhaldinu.
Hafa gagnrýnendur gert að gamni sínu og sagt að söguþráðurinn eigi sumpart margt sameiginlegt með ferli Cooper sé horft yfir árið, en líkt og kvikmyndaunendur vita var hann tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir frammistöðu sína í stórmyndinni American Sniper.
Hann hreppti þó ekki hnossið og næsta sem bíógestir sáu var kvikmyndin Aloha. Sú ræma fékk sannkallaða falleinkun, og náði hæst 5.5 á IMDB, að ónefndu aðkastinu sem framleiðendur myndarinnar urðu fyrir, þar sem innfæddir voru hlunnfarnir með eindæmum við gerð myndarinnar.
Nú segja fróðir menn hinsvegar að Cooper gæti átt viðreisnar von, á nákvæmlega sama tíma og Jones, hönd í hönd við fagra tóna Old Skin. Verður myndin frumsýnd þann 30.október.