Bílabúð Benna og Nesdekk hafa staðið fyrir Toyo leiknum, “Toyo í kortunum- hvernig sem viðrar”, á Bylgjunni frá 20.- 30. október. Þátttakan var góð enda mikið í húfi, tvær umfelganir voru dregnar út í beinni á Bylgjunni daglega í tíu daga. Aðalvinningurinn, heill umgangur af Toyo harðskeljadekkjum, var svo dreginn út 1. nóvember og upp úr pottinum kom nafnið Birna Gísladóttir.
Eðlilega er Birna í skýjunum með vinninginn. Þó að hún starfi sem flugfreyja og sé öllu vön í háloftunum, koma Toyo harðskeljadekkin sér afar vel, því til stóð að dekkja upp fjölskyldubílinn fyrir veturinn, til öryggis. Þá dugar ekkert minna en það besta; Toyo harðskeljadekk. Í frétt frá Bílabúð Benna er Birnu og fjölskyldu óskað til hamingju með nýju dekkin og sendar eru bestu kveðjur til allra þátttakenda í Toyo leiknum.
Vann Toyo dekkjaumgang
