Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, gerði því í skóna í ræðustól í dag að málið væri liður í hrossakaupum stjórnarflokkanna og að auðvelt væri að sjá gamla helmingaskiptatilburði.

„Þarna er verið að taka stofnun sem er rekin á markvissan hátt, þar sem bókhald og annað er eins gegnsætt og vera má, og flytja undir væng utanríkisráðuneytisins. Það væri til dæmis ekki skynsamlegt að taka Vegagerðina og færa inn á þriðju eða fjórðu hæð innanríkisráðuneytisins. Það væri galið,“ sagði Ögmundur og taldi að það sama myndi gilda um þetta mál.
Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, veitti andsvar við ræðu Ögmundar. „Það liggur fyrir að þetta mál hefur ekki stuðning í stjórnarliðinu en það mátti greina, á orðum háttvirts þingmanns, að það það væru aðeins þingmenn Sjálfstæðisflokksins, en ekki Framsóknarflokksins, sem séu á móti því,“ sagði Össur og bætti við að hann teldi að fjölmargir þingmenn Framsóknar væru á móti frumvarpinu.
„Ég trúi því ekki að þingmenn Framsóknarflokksins upp til hópa gangi gegn einni af megin arfleifðum eins af glæstustu leiðtogum þess flokks, Ólafs Jóhannessonar, sem hratt henni úr vör fyrir mörgum áratugum síðan,“ sagði Össur. Hann telur að málinu sé veitt þessi ofuráhersla nú þar sem þetta sé eina málið á þingmálalista utanríkisráðherra utan málum sem tengjast aðlögun að reglum ESB. Sjö slíkar þingsályktanir voru samþykktar á þinginu í dag.
„Ég tel að margir þingmenn Framsóknar styðji málið ekki og ræð ég það af því að þeir hafa ekki treyst sér til að halda ræðu um það. En þetta eru vinnufélagar mínir og veit að þetta eru viti bornar verur sem hafa hlustað á röksemdirnar með málinu. Ég held þeir hafi látið ginnast af þeim blekkingum sem færðar voru fram með málinu,“ sagði Össur í síðara andsvari.
Þingmenn hafa mjög kvartað yfir því að Gunnar Bragi Sveinsson sé ekki viðstaddur umræðu um málið. Ráðherrann hefur enn ekki látið til sín taka við aðra umræðu málsins. Ítrekað var óskað eftir því að fundi yrði frestað þar sem ráðherrann gæti ekki verið viðstaddur umræðuna vegna anna á öðrum vígstöðvum. Össur Skarphéðinsson benti á það í stöðuuppfærslu á Facebook í dag að Gunnar Bragi væri upptekinn á fundi með Framsóknarmönnum í heimahéraði sínu, Skagafirði.

„Virðulegi forseti. Ég hyggst við enda þessarar umræðu [innskt. blm. fyrstu umræðu] svara flestum spurningum sem hér hafa komið fram enda eru þær ekki svo margar, þetta er endurtekið efni hjá flestum þingmönnum,” sagði Gunnar Bragi þegar hann veitti andsvar við ræðu Kristjáns L. Möller í fyrstu umræðu. Það var eina andsvar hans við ræðu annars þingmanns við umræðuna en að öðru leyti lét hann sér nægja að svara andsvörum við framsöguræðu sína og ræðu sem hann flutti áður en málið gekk til nefndar.
Gagnrýni þingmanna stjórnarandstöðunnar, en minna hefur farið fyrir þingmönnum stjórnarinnar í ræðustól, hefur meðal annars snúist um hvað hvort ekki sé rétt að bíða eftir nýrri skýrslu frá þróunarsamvinnunefnd OECD, DAC, um stöðu mála og að ekki hafi nægilega margir verið kallaðir fyrir nefnd til að fjalla um málið þar. Einnig hefur verið ýjað að því að þessi breyting sé til þess að færa stofnunina nær ráðherra og gera honum auðveldara að vasast í henni eftir sínu höfði. Enn aðrir hafa breytinguna megi reka til þess að ráðherra sé illa við forstöðumann stofnunarinnar, Engilbert Guðmundsson.
„Ráðherrann er sakaður um hefndarhug gegn forstöðumanni, en honum er nú ekki verr við forstöðumann en svo að hann er í starfshópnum sem vinnur við útfærslu á sameiningunni, sá ágæti forstöðumaður. Það er líka undarlegt að ekki hefur verið spurt hvort komi til greina að nýta starfskrafta forstöðumannsins áfram. Því hefði verið einfalt að svara játandi,” sagði Gunnar Bragi 22. september síðastliðinn í ræðustól þingsins.
Þingfundi var frestað klukkan 19.24 en þá voru enn sjö eftir á mælendaskrá um málið.