Nýr Kia Cadenza Finnur Thorlacius skrifar 13. nóvember 2015 10:59 Kia Cadenza verður hinn laglegasti bíll. automobilmag
Kia ætlar ekki að vera eftirbátur stóra bróðursins Hyundai og kynnir nú nýja gerð hins stóra fólksbíls Cadenza. Cadenza hefur að mestu verið beint að Bandaríkjamarkaði, eða frá árinu 2013, en hefur þó verið í sölu í S-Kóreu frá 2010. Nú er komið að annarri kynslóð bílsins og Kia hefur sent frá sér teikningar af bílnum, en með yfirumsjón útlits hans hafði Peter Schreyer sem fyrr. Bíllinn er nú lengri, breiðari og með meira afgerandi línur. Bíllinn á að verða öllu rúmmeiri en forverinn, sem þó var rúmgóður bíll. Bíllinn verður áfram framhjóladrifinn og með V6 bensínvél, en líklega verður hann einnig í boði með fjögurra strokka vél með forþjöppu sem yrði sparneytnari útfærsla hans. Fyrri gerð bílsins vakti tilhlýðlega athygli vestanhafs fyrir fágun og rými og álitu margir að með honum fengju kaupendur mikið fyrir peninginn. Verðið á bílnum hefur verið talsvert lægra í Bandaríkjunum en á jafn stórum þýskum lúxusbílum og má líklegt telja að svo verði áfram með nýja kynslóð hans. Framleiðsla nýs Cadenza mun hefjast á næsti ári og þá sem 2017 árgerð.
Mest lesið Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Innlent