Hyundai i20 með skottið fullt af verðlaunum Finnur Thorlacius skrifar 11. nóvember 2015 14:07 Frá verðlaunaafhendingunni í síðustu viku.
Nýr Hyundai i20 hlaut á fimmtudaginn verðlaunin Gullna stýrið 2015 í kosningu lesenda þýska bílatímaritsins Auto Bild og vikublaðsins Bild am Sonntag sem standa fyrir þessari kosningu í samstarfi við bílablöð í tuttugu Evrópulöndum. Gullna stýrið eru ein eftirsóttustu verðlaun sem veitt eru í bílaheiminum. Peter Schreyer, yfirmaður hönnunardeildar hjá Hyundai Motor Group, veitti verðlaunum viðtöku í höfuðstöðvum Axel Springer Publishing í Berlín þar sem verðlaunahátíðin fór fram. Hann sagðist við það tilefni afar þakklátur lesendum og stoltur yfir því hve ánægðir þeir eru með einn yngsta fjölskyldumeðliminn í evrópsku Hyundai-fjölskyldunni. „Það að lesendur skyldu velja hinn nýja Hyundai i20 er enn ein staðfesting þess að við tókum rétta stefnu þegar við hönnuðum frá grunni nýja fólkabílalínu Hyundai fyrir Evrópumarkað. Við höfum náð miklum árangri með fallegri hönnun, einstökum gæðum og verkkunnáttu sem framleiðendur,“ sagði Schreyer á hátíðinni í Berlín. Verðlaunahátíð Gullna stýrisins 2015 var í ár sú fertugasta frá upphafi og af því tilefni veglegri en nokkru sinni áður. Gullna stýrið í flokki minni fólksbíla er veitt fyrir val á besta bíl ársins að mati lesenda í 20 löndum og hlaut Hyundai i20 verðlaunin í þeim flokki. Hinn nýi og endurhannaði i20 hefur áður hlotið eftirsótt verðlaun, svo sem „The Red Dot Design Award“ og „The iF Design Award“ auk þess sem i20 hlaut fyrr á árinu verðlaunin Besti bíllinn í sínum flokki (The best car in its class).
Mest lesið Kona réðst á pizzasendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí Erlent Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Innlent Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Innlent „Dýrlegt veður eins langt og séð verður“ Veður Loftárásir héldu áfram og segja enn harðari árásir framundan Erlent Enn einn skjálftinn austan við Grímsey Innlent