Átta bíla Ferrari safn til sölu á 1,5 milljarð Finnur Thorlacius skrifar 9. desember 2015 09:06 Ferrari bílarnir átta sem boðnir verða upp hjá Scottsdale.
Einn forfallinn Ferrari safnari, Tony Shooshani, ætlar að fækka í safni sínu og losa sig við 8 stykki af fjölmörgum Ferrari bílum sínum á Scottsdale uppboðinu í næsta mánuði. Hann ætlar að halda eftir nokkrum bílum, svo sem Ferrari 599 XX Evo, Ferrari La Ferrari, Ferrari Enzo, Ferrari 288 GTO og Ferrari Pininfarina Sergio, sem er einn af aðeins 6 slíkum framleiddum. Bílarnir sem hann ætlar að selja eru hinsvegar af gerðunum Ferrari F50, Enzo, F40, 250 GT Lusso, 250 GT Series II Cabriolet, Dino 206 GT, 512 BBi og 328 GTS. Bílarnir verða boðnir upp hver fyrir sig og verðmæti þeirra er í réttri röð hér að ofan með þá dýrustu fyrst upptalda. Verðmæti bílanna allra sem boðnir verða upp er talið á bilinu 1,34 til 1,75 milljarðar króna, en búist er við að ríflega 1,5 milljarður fáist fyrir þá. Á bílauppboðum síðustu ára þar sem gamlir bílar hafa skipt um hendur standa Ferrari bílar efst á palli er kemur að kaupverði og hefur virði þeirra aukist mjög á síðustu árum. Því ætti fjárfesting sem þessi meðal bílasafnara að heilla.
Mest lesið Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí Erlent Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Innlent Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Innlent „Dýrlegt veður eins langt og séð verður“ Veður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Innlent