Red Bull liðið mun nota Renault vél á næsta ári sem merkt verður úraframleiðandanum Tag Heuer.
Vélin veðrur framleidd af Renault en Red Bull setur svo Tag Heuer merki á þær. Samningurinn gildir í eitt tímabil.
Tag Heuer var áður styrktaraðili McLaren liðsins. Nú er svissneski úraframleiðandinn kominn í samstarf við svissneska liðið. Eftir miklar vangaveltur um framtíð Re Bull liðsins er ljóst að það verður með á næsta ári og ökumenn liðsins munu hafa vél til að knýja þá áfram.
Red Bull bíll næsta árs mun því vera Red Bull Racing-Tag Heuer RB12.
„TAG Heuer og Red Bull eru tvö vörumerki sem hafa árstríðu fyrir kappakstri og vilja gera hlutina á óhefðbundinn hátt, þetta samstarf mun endurspegla það,“ sagði Christian Horner, keppnisstjóri Red Bull.
„Formúla 1 er stór hluti af því hvað felst í TAG Heuer merkinu og Red Bull er ungt og spennandi lið með mikinn drifkraft, sem hentar okkar markaðsáætlun fullkomlega,“ sagði Jean-Claude Biver, framkvæmdastjóri TAG Heuer.
„Við erum glöð að sjá Renault halda áfram í í Formúlu 1 og við viljum þakka þeim fyrir þeirra framlag frá árinu 2007. Tæknilegt samstarf við Ilmor gefur okkur ástæðu til að hlakka til 2016,“ bætti Horner við.
