Þetta er flaggskipið frá Volvo Bus í rútum. Gólfið er hallandi (theater floor) til að auka upplifun farþega af að sjá betur út um framrúðuna á meðan á lungamjúkum akstri á loftpúðafjörðun stendur. Rútan er hlaðin aukabúnaði, þar á meðal ísskápum, kaffiaðstöðu, sjónvarpsskjám, salerni, tvöföldu lituðu gleri, myndavélum fyrir bílstjóra o.fl.
Mikill lúxus fyrir farþega
Farþegasætin eru einstaklega vel útbúin og þægileg. Þau eru fjölstillanleg, með armpúðum á milli sæta, hallanleg með fótskemlum og fóthvílum auk þess sem hægt er að auka hliðarbil á milli sæta. Við hvert sætapar eru 230 volta tenglar til að hlaða raftæki. Stjórnborð fyrir ofan farþega tryggir þeim ferskt loft og lestrarljós eftir óskum.
Að sjálfsögðu er loftkæling og fyrir íslenskar aðstæður er tímastillir á hitun, þannig að rútan er alltaf heit að innan áður en fyrstu farþegar dagsins stíga inn í hana. Bíllinn lækkar sig hurðamegin til að auðvelda inngöngu. Lokaðar „overhead“ farangursgeymslur eru við sætin, líkt og í flugvélum. Í bílnum er 460 hestafla dísilvél og hann er þriggja hásinga.

