Fimm stjörnu einkunn Honda Jazz þýðir að hann er annar tveggja bíla í sínum flokki sem fær 5 stjörnur það sem af er árinu 2015. Bæði HRV og Jazz eru búnir borgarbremsubúnaði (City Brake Active System) sem staðalbúnað í öllum útfærslum. Búnaðurinn notar laser tækni til að skanna veginn framundan og breytir sjálfkrafa hemlun ef árekstur á hægum hraða er yfirvofandi.
Bæði mið- og topp útfærslur í báðum gerðunum eru búnar fullkomnu aðstoðarkerfi ökumanns eða ADAS. Kerfið innifelur snjallhraðastilli, akreinaviðvörun, virkt borgarbremsukerfi, umferðarmerkjagreini og háljósastuðning. Nýir HRV og Jazz feta í fótspor annara 5-stjörnu bíla frá Honda, þar á meðal Civic og CR-V.
Euro NCAP horfir til alhliða öryggis bílanna og gerir neytendum auðveldara að lesa úr niðurstöðum allra öryggisþátta þeirra. Þessir þættir eru t.d. öryggi farþega, öryggi gangandi vegfarenda, öryggi barna og búnaður og virkni öryggis- og aðstoðarkerfa fyrir ökumann. Að sögn Bernhard, söluumboðs Honda bíla á Íslandi, verða bæði Honda HR-V og Honda Jazz frumsýndir fyrri hluta árs 2016.
