Umfjöllun og viðtöl: Grótta - Akureyri 28-29 | Bergvin fór á kostum í naumum sigri Kristinn Páll Teitsson skrifar 12. desember 2015 18:30 Bergvin skoraði 13 af 29 mörkum Akureyrar á Nesinu. Vísir/Vilhelm
Bergvin Þór Gíslason fór á kostum í liði Akureyrar í naumum eins marka sigri á Gróttu í 17. umferð Olís-deildar karla í kvöld 29-28 en með sigrinum skaust Akureyri upp í 5. sæti deildarinnar. Um var að ræða leik sem var frestað á sínum tíma en liðin áttu það sameiginlegt að hafa spilað vel í undanförnum leikjum eftir að hafa byrjað tímabilið illa. Sátu þau í 6-7. sætum Olís-deildarinnar með 14 stig fyrir leik dagsins. Slakur sóknarleikur einkenndi fyrstu mínútur leiksins. Liðin töpuðu boltanum trekk í trekk, tóku léleg skot og var staðan að tíu mínútum loknum 3-1 fyrir Akureyri. Bæði lið tóku við sér á þeim tíma og skiptust liðin á mörkum fram að lokum fyrri hálfleiks þegar Grótta náði góðum spretti og jafnaði metin í 13-13. Liðin héldu áfram að skiptast á mörkum í seinni hálfleik en Seltirningar voru alltaf skrefinu á undan og leiddu lengst af með tveimur mörkum en Norðanmönnum tókst að jafna metin fjórum mínútum fyrir leikslok. Akureyri missti mann af velli í næstu sókn Gróttu en þrátt fyrir að leika manni færri næstu mínúturnar tókst Akureyringum að ná tveggja marka forskoti með tveimur hraðaupphlaupsmörkum. Grótta náði að minnka muninn og fékk tækifæri til þess að jafna metin á lokamínútum leiksins en þeim tókst ekki að koma skoti á markið og fögnuðu Norðanmenn því naumum en mikilvægum sigri. Með sigrinum skaust Akureyri upp í 5. sæti Olís-deildarinnar en lokaleikur Norðanmanna fyrir vetrafrí er gegn ÍBV á fimmtudaginn. Um var að ræða leik sem var frestað á sínum tíma en liðin áttu það sameiginlegt að hafa spilað vel í undanförnum leikjum eftir að hafa byrjað tímabilið illa. Sátu þau í 6-7. sætum Olís-deildarinnar með 14 stig fyrir leik dagsins. Slakur sóknarleikur einkenndi fyrstu mínútur leiksins. Liðin töpuðu boltanum trekk í trekk, tóku léleg skot og var staðan að tíu mínútum loknum 3-1 fyrir Akureyri. Bæði lið tóku við sér á þeim tíma og skiptust liðin á mörkum fram að lokum fyrri hálfleiks þegar Grótta náði góðum spretti og jafnaði metin í 13-13. Liðin héldu áfram að skiptast á mörkum í seinni hálfleik en Seltirningar voru alltaf skrefinu á undan og leiddu lengst af með tveimur mörkum en Norðanmönnum tókst að jafna metin fjórum mínútum fyrir leikslok. Akureyri missti mann af velli í næstu sókn Gróttu en þrátt fyrir að leika manni færri næstu mínúturnar tókst Akureyringum að ná tveggja marka forskoti með tveimur hraðaupphlaupsmörkum. Grótta náði að minnka muninn og fékk tækifæri til þess að jafna metin á lokamínútum leiksins en þeim tókst ekki að koma skoti á markið og fögnuðu Norðanmenn því naumum en mikilvægum sigri. Með sigrinum skaust Akureyri upp í 5. sæti Olís-deildarinnar en lokaleikur Norðanmanna fyrir vetrafrí er gegn ÍBV á fimmtudaginn. Bergvin Þór fór á kostum í leiknum og skoraði alls 13 mörk en í liði Gróttu voru það Viggó Kristjánsson og Finnur Ingi Stefánsson sem voru atkvæðamestir með 7 mörk hvor. Sverre: Strákarnir eiga skilið risastórt hrós„Að mínu mati var allur leikurinn spennandi. Þessi lið voru jöfn að stigum fyrir leikinn og hafa verið að spila mun betur undanfarnar vikur,“ sagði Sverre Andreas Jakobsson, þjálfari Akureyrar, aðspurður hvernig lokamínúturnar hefðu verið á hliðarlínunni í dag. „Þetta er erfiður völlur heim að sækja og ég tek stigunum tveimur fagnandi. Gróttumenn hafa verið að spila mjög vel undanfarnar vikur.“ Sverre sá bæði jákvæða og neikvæða punkta í leiknum. „Þetta var mjög flottur leikur að mörgu leyti en það er margt sem þarf að skoða betur. Þetta var þannig leikur, það var mikið í húfi og tvö jöfn lið að mætast. Það kom mér ekki á óvart að þetta vannst á aðeins einu marki,“ sagði Sverre og bætti við: „Ég get ekki kvartað undan því að skora 29 mörk í leik, það er kannski helst varnarleikurinn sem hægt er að setja út á. Ég get hinsvegar ekki kvartað undan strákunum, þeir eiga risastórt hrós skilið eftir þetta.“ Hann var ánægður með viðbrögð liðsins þegar þeir léku manni færri undir lok leiksins. „Maður hélt að þetta yrði kannski vendipuktur fyrir þá en þetta varð þess í stað vendipunktur fyrir okkur og tryggði okkur sigurinn. Við þiggjum þetta með bros á vor,“ sagði Sverre léttur að lokum. Gunnar: Nokkrir dómar hérna undir lokin alveg út úr kortinu„Við erum helvíti fúlir, það tekur tíma að melta þetta tap,“ sagði Gunnar Andrésson, þjálfari Gróttu, hundsvekktur að leikslokum. „Mér fannst sóknarlega fyrsta korterið við vera lélegir en þegar upp er staðið erum við með tvö varin skot í seinni hálfleik og það er erfitt að vinna leiki með.“ Leikurinn var kaflaskiptur en í fyrri hálfleik leiddi Akureyri lengst af en í seinni hálfleik voru Seltirningar yfirleitt með forystuna án þess að ná að hrista gestina frá sér. „Varnarlega vorum við allt í lagi en það vantaði alltaf herslumuninn og þeir náðu alltaf að svara. Það á oftast að duga að skora 27 mörk til þess að vinna leiki en við fengum allt of fá auðveld mörk í leiknum í dag og það telur mikið.“ Gunnar var fámæltur þegar kom að dómgæslunni undir lok leiksins en hann virtist vera ósáttur. „Mér fannst nokkrir dómar hérna undir lokin alveg út úr kortinu en ég ætla ekki að tjá mig meira um það,“ sagði Gunnar sem sagði það jákvætt að hafa verið jafn nálægt því að stela sigrinum þrátt fyrir að hafa ekkert leikið neitt frábærlega í dag. „Fyrsta upplifun eftir leikinn er að við höfum aldrei náð að spila okkar besta leik. Við getum tekið það jákvætt úr þessu að þrátt fyrir hafa spilað svona vorum við inn í þessu allan tímann.“ Bergvin: Alltof tæpt hérna undir lokin„Þetta var mjög sætt verð ég að segja, þetta var allt of tæpt hérna undir lokin,“ sagði Bergvin Þór Gíslason, sáttur að leikslokum. „Við vorum með tveggja marka forskot þegar mínúta var eftir og vorum að henda frá okkur boltanum. Við vorum stálheppnir að missa þetta ekki niður í jafntefli. Það var þrautseigja sem skilaði þessu.“ Í stað þess að missa hausinn þegar fjórar mínútur voru eftir og Akureyri missti mann af velli stigu leikmenn liðsins upp. „Við sýndum mikinn karakter á þeim kafla og sýndum þroskamerki. Við töpuðum á móti þessu liði á heimavelli með sex mörkum og vorum algjörlega glórulausir í þeim leik. Ég myndi segja að það væri stígandi í leik okkar þessa stundina.“ Bergvin fór sjálfur á kostum í leiknum en hann skoraði 13 mörk úr aðeins 16 skotum. „Ég er auðvitað bara ánægður. Ég var búinn að lofa félaga mínum að fara yfir tíu stiga múrinn og það tókst í dag svo ég er sáttur.“
Olís-deild karla Mest lesið Túfa rekinn frá Val Íslenski boltinn Leyndarmáli ljóstrað upp þegar Heimir og Björn kvöddu Íslenski boltinn „Varnarleikurinn er bara stórslys“ Enski boltinn Hlupu inn á Formúlu 1-brautina: „Ég hefði getað drepið þá“ Formúla 1 Hljóp í tólf klukkutíma rifbeinsbrotinn Sport Setja fjórtán milljarða í kvennadeildina Fótbolti Hárið í hættu hjá United manninum Enski boltinn Blaðamannafundur KSÍ: Þorsteinn og Glódís sátu fyrir svörum Fótbolti Stefán Kári og Bjarki Fannar tóku báðir Íslandsmet af Arnari Péturs Sport Enginn Lakers-maður hafði náð þessu í meira en 52 ár Körfubolti Fleiri fréttir Gísli bjó til meira en þriðjung markanna Haukur magnaður í sigri Löwen Blær skoraði þrjú og lagði upp jöfnunarmarkið KA/Þór sótti sigur gegn Fram og stigalausar Stjörnukonur Fram kjöldró HK og spenna í Eyjum Meistararnir unnu gegn ÍBV og ÍR hafði betur gegn Selfyssingum Donni og félagar björguðu stigi undir lokin Afturelding komst upp að hlið Hauka Seldu bleika búninginn hennar Herrem fyrir meira en milljón „Leið vel þegar ég fór inn úr færinu“ Uppgjörið FH - Haukar 27-26 | Birgir Már tryggði FH sigur eftir spennutrylli Bernard fór mikinn en Valsmenn sluppu með sigurinn Fyrsti sigur Þórsara síðan í byrjun september Ómar Ingi með fullkomnan leik í Meistaradeildinni Guðjón Valur og lærisveinar hársbreidd frá því að vinna Kiel Hlakka til að sjá Viktor Gísla aftur og senda honum skilaboð Neyddar í sömu stöðu og Ísland og límdu melónur á skóna Hatar hvítu stuttbuxurnar Fjölga stórmótum landsliða í handboltanum Allt jafnt í bikarslag íslensku stelpnanna Orri fagnaði í Íslendingaslag í Meistaradeildinni Hjartavandamál halda Reyni frá keppni Stórar breytingar á Evrópukeppnum í handbolta Framarar töpuðu aftur á heimavelli í Evrópudeildinni Magdeburg komst örugglega áfram í sextán liða úrslitin Íslensku strákarnir áberandi í Evrópudeildinni „Stærri og sterkari en liðin sem við þekkjum hérna heima“ Viktor til liðs við frænda sinn og bróður Uppgjörið: Portúgal - Ísland 26-25 | Annar eltingaleikur íslenska liðsins endar með öðru tapi Kom að fjórtán mörkum í stórsigri á Leipzig Sjá meira