Áhorfendur ærðust eftir mögulega mark mótsins í fyrsta leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. desember 2025 07:15 Ayoub El Kaabi sést hér innsigla sigur Marokkó með þessu frábæra marki sínu. Getty/Fareed Kotb Heimamenn í Marokkó opnuðu Afríkumótið í fótbolta með sigri í gær og stórkostlegri hjólhestaspyrnu sem gerði allt vitlaust á vellinum.
Magnað mark El Kaabi tryggði Marokkó 2-0 sigur á Kómoreyjum í opnunarleiknum. Marokkó er gestgjafi mótsins og stóð á endanum undir væntingum á heimavelli í Rabat. Liðið var talið mun sigurstranglegra gegn Kómoreyjum en tók vissulega sinn tíma að brjóta ísinn. Það var samt lítil þolinmæði hjá spenntum stuðningsmönnum sem voru heldur betur mættir til að sjá veislu. Kómoreyjar héldu þó hreinu fram að hálfleik og gestgjafarnir fengu yfir sig baul á leið sinni til búningsklefa. Eftir hlé tókst Marokkó hins vegar að skora loksins. Markið kom tíu mínútum eftir að seinni hálfleikurinn hófst. Markið mikilvæga skoraði Real Madrid-leikmaðurinn Brahim Diaz. Síðan trylltust áhorfendur á heimavelli þegar Ayoub El Kaabi skoraði með hjólhestaspyrnu og kom Marokkó í 2-0 á 74. mínútu. Marokkó var sterkari allan leikinn og klúðraði einnig vítaspyrnu snemma í leiknum en Soufiane Rahimi lét þá Yannick Pandor verja frá sér. Sambía og Malí eru hinar tvær þjóðirnar í A-riðli. Afríkukeppnin er nú farin á fullt og heldur áfram í dag. View this post on Instagram A post shared by VG Sporten (@vgsporten)
Afríkukeppnin í fótbolta Marokkó Mest lesið Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Enski boltinn Einn leikmaður með samning og völlurinn ólöglegur Fótbolti Vildi tapa legg: „Mesti hávaði sem ég hef heyrt“ Sport Salah færði Egyptum draumabyrjun Fótbolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Steraleikarnir segi ungu fólki að það sé aldrei nógu fullkomið Sport Hættur aðeins þrítugur Golf Dagskráin í dag: Kæst yfir NFL, pílu og enska boltanum Sport Sagði látna systur sína hafa tryggt sigurinn ótrúlega Sport Fleiri fréttir Einn leikmaður með samning og völlurinn ólöglegur Salah færði Egyptum draumabyrjun Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Neres hetja Napoli í Sádi-Arabíu Aron Einar lagði upp dýrmætt sigurmark Afkáralegt fagn hjá hetju Sambíu Glódís Perla veik í jólafríið en enn taplaus Glódís og Hákon best í fótboltanum á árinu Frelsaði fjárfestirinn Dani Alves gefur sjálfum sér samning Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg Mbappé breytti um fagn af góðu tilefni „Allir virðast elska hann“ Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Táningur fær mikið hrós fyrir viðbrögð sín þegar mótherji missti meðvitund „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Freyr himinlifandi með íslensku strákana Sjáðu geggjaðan snúning Alberts áður en hann skoraði frábært mark Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Áhorfendur ærðust eftir mögulega mark mótsins í fyrsta leik Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Hleður Kjartan lofi eftir frábæra frumraun með Aberdeen Óttast að Isak hafi fótbrotnað Túfa gerir þriggja ára samning í Svíþjóð Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Albert skoraði í fyrsta sigri Fiorentina Bæjarar aftur á sigurbraut Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Sjá meira