Við tókum á móti sex hundruð gestum síðastliðinn sunnudag og reynslan hefur sýnt okkur að gestum fjölgar þessar helgar fram að jólum,“ segir Guðrún Helga Stefánsdóttir, kynningarstjóri Árbæjarsafnsins, en hún býst við að gestir geti, þegar mest er, orðið rúmlega þúsund.
„Það er orðinn fastur liður hjá mörgum fjölskyldum að heimsækja okkur á aðventunni. Ekki síst eru ömmur og afar dugleg að koma með barnabörnin enda geta þau sjálf greint frá eigin reynslu af jólunum í gamla daga,“ segir Guðrún.
Ýmislegt skemmtilegt er í boði. Í Árbænum sitja fullorðnir og börn með vasahnífa og skera út laufabrauð en uppi á baðstofulofti verður spunnið og prjónað. Þar verður jólatré einnig vafið lyngi.

„Svo er Krambúðin að sjálfsögðu opin og þar er til sölu kóngabrjóstsykur sem mér skilst að sé annars ófáanlegur,“ segir Guðrún og mælir einnig með að fólk setjist inn í Dillonshús og gæði sér á heitu kakói.
Hrekkjóttir jólasveinar leika stórt hlutverk í jólagleðinni þar sem þeir gægjast á glugga og dansa í kringum jólatréð á torginu.

14.00 Guðsþjónusta í safnkirkjunni.
13.30 og 14.30 Hugljúfir jólatónleikar í Lækjargötu með dúettinum Stjörnubjart.
15.00 Jólatrésskemmtun á torginu.
14.00-16.00 Jólasveinar, þessir gömlu íslensku, verða á vappi um safnsvæðið.
Sunnudaginn 20. desember kl. 13 til 17
14.00 Guðsþjónusta í safnkirkjunni.
14.30 Jólatónleikar með Huga Jónssyni og Kára Allonssyni í safnkirkjunni.
15.00 Jólatrésskemmtun á torginu. 14.00-16.00 Jólasveinar verða á vappi um safnsvæðið.
Aðgangseyrir er 1.400 kr. fyrir fullorðna en ókeypis er fyrir börn 18 ára og yngri, ellilífeyrisþega (70+) og öryrkja.