Þorskhnakkar með ólífusalsa og kartöflumús
Kartöflu- og sellerímús
Það er best að byrja á kartöflumúsinni en hún er tímafrekust.
1 sellerírót, skorin í teninga
8-10 kartöflur
2-3 msk. smjör
Mjólk, magn eftir smekk hvers og eins
Sykur
Salt og pipar
Aðferð:
Fyrsta skref er að afhýða sellerírót og sjóða bæði rótina og kartöflur í söltu vatni. Gætið þess að sjóða sellerírót og kartöflur í hvort í sínum pottinum. Hvort tveggja soðið þar til mjúkt. Vatninu hellt af og kartöflur eru afhýddar. Sellerírót og kartöflur eru stappaðar saman. Volgri mjólk og smjöri bætt út í, bragðbætið með salti og pipar. Stappið saman þar til þið náið þeirri áferð sem þið kjósið.
Leyfið kartöflumúsinni að standa í pottinum.
Þorskhnakkar
800 g þorskhnakkar, skornir í 200 g steikur
Ólífuolía
Salt og pipar
Aðferð:
Þorskhnakkar eru besti hluti þorsksins og jafnast á við fína steik. Byrjið á að skera flökin í jafn stóra bita. Hitið olíu á pönnu og steikið fiskinn á hvorri hlið í þrjár til fjórar mínútur. Kryddið til með salti og pipar.
Þegar fiskurinn er alveg að verða klár þá byrjið þið að bæta ólífusalsa saman við.
Tómat- og ólífusalsa
5 vorlaukar, smátt saxaðir
Handfylli svartar ólífur, í bitum
Handfylli sólþurrkaðir tómatar, í bitum
2–3 msk. furuhnetur, ristaðar
Fersk steinselja, smátt söxuð
Aðferð:
Skerið vorlaukinn niður, ólífur í tvennt og sólþurrkuðu tómatana í bita. Bætið öllu út á pönnuna með og steikið í 1-2 mínútur. Bætið steinselju og smjöri út á pönnuna í lokin en smjörið gerir réttinn enn bragðbetri.