

Hvað getur ljósmóðir gert fyrir þig?
Allar spurningarnar hér að ofan og fleiri til eru hluti af daglegu starfi mínu. Ég er nefnilega ljósmóðir! Innan skamms verða liðin 20 ár frá því ég var svo heppin að komast inn í nám í ljósmóðurfræði við Háskóla Íslands. Þá hafði ég lokið BS-gráðu í hjúkrun og starfað sem hjúkrunarfræðingur í átta ár. Þannig hafði ég öðlast fjölþætta reynslu innan heilbrigðisgeirans sem ég taldi að myndi nýtast mér vel í ljósmóðurstarfinu. Það reyndist rétt vera – að öllu öðru leyti en þegar kom að launakjörum. Fyrra nám og reynsla skilaði sér hreint alls ekki í launaumslagið heldur lækkuðu launin mín þegar ég hóf störf sem ljósmóðir. Ótrúlegt en satt!
Til að verða ljósmóðir þarf sex ára háskólanám, fyrst fjögur ár í hjúkrunarfræði og svo tvö ár í ljósmóðurfræði. Sérþekking ljósmæðra liggur í að hlúa að eðlilegu barneignarferli, veita fræðslu og upplýsingar og styðja foreldra í foreldrahlutverkinu um leið og þörfum þeirra og barnsins er mætt. Síðast en ekki síst er eitt af hlutverkum ljósmóður að greina frávik frá eðlilegu ferli, leita til annarra fagaðila þegar þörf er á og veita áframhaldandi stuðning þó eitthvað komi upp á.
Margar ljósmæður hafa einnig lokið framhaldsnámi og í vaxandi mæli hafa ljósmæður sérhæft sig og öðlast sérfræðiviðurkenningu í ýmsum sérgreinum innan ljósmóðurfræðinnar. Má þar nefna fósturgreiningu, fæðingarhjálp, brjóstagjafaráðgjöf, umönnun áhættuhópa eins og mæðra með sykursýki, fíknivanda, flókin sálfélagsleg vandamál, tvíburameðgöngur og svo mætti lengi telja.
Því þrátt fyrir að almennt sé litið á meðgöngu og fæðingu sem náttúruleg fyrirbæri þá hefur margt breyst með í áranna rás, t.d. hefur aukist að konur með flókinn heilsufarsvanda eignist börn. Þá hefur vaxandi offita þjóðarinnar leitt til þess að mun fleiri konur teljast til áhættuhópa á meðgöngu og í fæðingu en áður var. Allt þetta kallar á aukna sérþekkingu ljósmæðra og stunda nú allmargar ljósmæður vísindarannsóknir sem ætlað er að skila aukinni þekkingu inn í barneignarþjónustuna.
Menntun metin til launa
Ljósmæður hafa verið talsvert í umræðu fjölmiðla undanfarið vegna yfirstandandi verkfalls BHM-félaga. Það er dapurlegt til þess að hugsa að ljósmæður voru í sömu sporum fyrir sjö árum síðan en við samningaborðið á þeim tíma var þeim lofað leiðréttingu á launakjörum. Greinarhöfundur skrifaði grein vegna þessa sem birtist á mbl.is í júlí 2008 þar sem m.a. kom fram að verulegt misræmi var á launakjörum háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna. Síðan eru liðin sjö ár! Og enn brenna sömu málin á eins og kemur fram í viðtali við formann Ljósmæðrafélags Íslands á visir.is þann 7. maí sl! Ljósmæður eru enn í þeim sporum að heyja harða baráttu fyrir því að menntun þeirra sé metin til launa!
Ljósmæður standa vaktina fyrir þig. Gildir þá einu hvort það eru virkir dagar eða stórhátíðir, dagar eða nætur – ljósmóðirin sinnir sínu starfi á heilsugæslustöðvum, fæðingarstofnunum og í heimahúsum á öllum tímum sólarhringsins og alla daga ársins! En hinni löngu vakt kjarabaráttu verður að fara að ljúka – ég vona að ég þurfi ekki að skrifa mikið oftar um misrétti í launakjörum! Er ekki komið nóg?
Skoðun

Ferðaþjónustan er burðarás í íslensku efnahagslífi
Þórir Garðarsson skrifar

Hversu lítill fiskur yrðum við?
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Þjóðin vill eitt, Kristrún annað
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Lélegir íslenskir læknar...eru ekki til!
Steinunn Þórðardóttir skrifar

Þjóðin sem selur sjálfri sér: Vangaveltur um sölu Íslandsbanka
Guðjón Heiðar Pálsson skrifar

Hagsmunir heildarinnar - Þriðji kafli: Skálmöld
Hannes Örn Blandon skrifar

Valkyrjurnar verða að losa okkur við Rapyd
Björn B. Björnsson skrifar

Söngur Ísraels og RÚV
Ingólfur Gíslason. skrifar

Ófullnægjandi vinnubrögð ófaglærðra „iðnaðarmanna“: Áhrif á húskaupendur
Kristinn R Guðlaugsson skrifar

Uppiskroppa með umræðuefni í málþófi? Talið um Gaza!
Viðar Eggertsson skrifar

Kærleikurinn pikkaði í mig
Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar

Friðun Grafarvogs
Stefán Jón Hafstein skrifar

Torfærur, hossur og hristingar!
Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir skrifar

NÓG ER NÓG – Heilbrigðiskerfið er í neyðarástandi
Ásthildur Kristín Björnsdóttir skrifar

Við munum aldrei fela okkur aftur
Kári Garðarsson skrifar

Er Kópavogsbær vel rekinn?
Bergljót Kristinsdóttir skrifar

Oft er forræðishyggja hjá fjölskyldum og á heimilum fatlaðs fólks
Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar

Um sjónarhorn og sannleika
Líf Magneudóttir skrifar

Lýðræðið er farið – er of seint að snúa við?
Einar G. Harðarson skrifar

Er gagnlegt að kunna að forrita á tímum gervigreindar?
Henning Arnór Úlfarsson skrifar

Málþóf og/eða lýðræði?
Elín Íris Fanndal skrifar

Umdeildasti fríverslunarsamningur sögunnar?
Arnar Þór Ingólfsson skrifar

Ísafjarðarbær í Bestu deild
Sigríður Júlía Brynleifsdóttir,Gylfi Ólafsson skrifar

Þjóðarmorð í beinni
Arnar Eggert Thoroddsen skrifar

Allt þetta máttu eiga ef þú tilbiður mig
Birgir Dýrfjörð skrifar

Atvinnufrelsi!
Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar

Að mása eða fara í golf
Jón Pétur Zimsen skrifar

Leiðréttum kerfisbundið misrétti
Jónína Brynjólfsdóttir skrifar

Leikjanámskeið fyrir fullorðna við Austurvöll
Þórður Snær Júlíusson skrifar