Sport

Landsliðsfyrirliðinn verður Dreki í áratug

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Hlynur Bæringsson verður áfram í Svíþjóð.
Hlynur Bæringsson verður áfram í Svíþjóð. vísir/daníel
„Ég ætlaði mér að kíkja á hvað annað væri í boði og þá aðallega utan Svíþjóðar,“ segir Hlynur Bæringsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í körfubolta, við Fréttablaðið. Hann framlengdi samning sinn við Sundsvall Dragons um helgina um fimm ár.

Hlynur gekk í raðir sænska félagsins fyrir fimm árum síðan og að öllu óbreyttu verður landsliðsfyrirliðinn Dreki í áratug.

„Hlutirnir í stærri deildunum gerast yfirleitt ansi seint nema þú sért þekkt nafn. Eftir það komum við sótsvartur almúginn svona með haustinu,“ segir Hlynur og hlær.

Samningamál í körfubolta geta verið mjög erfið eins og Hlynur segir. Mjög algengt er að samið sé aðeins til eins árs í einu.

„Ég er að fá einstakan samning hjá Sundsvall. Okkur fjölskyldunni líður vel og það er sjaldgæft að 33 ára gamlir menn fái fimm ára samning,“ segir Hlynur sem er hreykinn af þessu enda um mikla viðurkenningu að ræða.

„Maður á að leyfa sér að hugsa þannig. Það eru ekkert allir sem myndu nenna að hafa mann í fimm ár í viðbót. Það er bara þannig að á næstu fimm árum mun eitthvað undan láta í skrokknum þannig þetta er mikil viðurkenning og það er hollt að hugsa um þetta þannig í staðinn fyrir að pirra sig á einhverju sem hefði geta gerst.“

Óvíst er hvort Hlynur spili í fimm ár, en honum er tryggt starf hjá félaginu út samninginn.

„Þetta er í grunninn fimm ára vinnusamningur. Ég má spila eins lengi og ég vil, en þegar ég hætti verður hann endurskoðaður. Þegar mér finnst þetta komið gott verð ég áfram hjá félaginu sem þjálfari eða í öðru starfi,“ segir Hlynur Bæringsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×