Opel Astra bíll ársins í Evrópu Finnur Thorlacius skrifar 29. febrúar 2016 16:58 Opel Astra.
Sem fyrr við upphaf bílasýningarinnar í Genf er útnefndur bíll ársins í Evrópu. Sýningin sjálf opnar ekki fyrir blaðamönnum fyrr en á morgun en Í dag fór þessi útnefning fram og var Opel Astra valinn bíll ársins í álfunni. Í öðru sæti í kjörinu varð Volvo XC90 jeppinn, sem valinn var bíll ársins á Íslandi fyrir árið í ár, og í því þriðja varð svo litli sportbíllinn Mazda MX-5 Miata. Hin 58 manna dómnefnd sem kom frá 22 Evrópuþjóðum gaf Opel Astra 308 stig, Volvo XC90 hlaut 294 stig og Mazda MX-5 fékk 202 stig. Þrjátíu og eitt ár eru liðin síðan að Opel bíll var valinn bíll ársins , en Opel Kadett hlaut þann titil árið 1985, en Opel Astra hefur tvisvar orðið í öðru sæti í kjörinu, eða árið 1992 og 1999 og endaði í þriðja sæti árið 2010. Í lokavalið komust nú 7 bílar og auk þeirra ofantöldu voru það Audi A4, Skoda Superb og lúxusbílarnir Jaguar XE og BMW 7-línan. Mikil kátína var í höfuðstöðvum Opel er valið varð ljóst og forstjóri Opel mærði mjög það starfsfólk Opel sem kom að hönnun og smíði bílsins, sem og dómnefndina sem hann að vonum var afar sáttur við. Opel hefur smíðað Astra bílinn og forvera hans, Kadett til langs tíma og er þessi nýi bíll Opel nú af elleftu kynslóð.
Mest lesið Stúlka í sjóinn við Reynisfjöru Innlent Stóra tjaldið fellt og hætt við brennuna vegna óveðurs Innlent „Það var töluvert verra veður en spáin sagði“ Innlent Stúlka flutt á sjúkrahús eftir fall í sjóinn við Reynisfjöru Innlent Að bugast á hálf nöktum ferðamönnum og beita sektum Erlent „Varla gangfær“ og „skulfu eins og hríslur“ Innlent „Fordæmalaus hitabylgja“ leikur Skandínava grátt Erlent Klíndu límmiðum á Ormsson sem versla ekki einu sinni við Rapyd Innlent Herjólfur siglir ekki meira í dag Innlent „Manneskja sem er komin á þetta plan hlýtur að vera rökþrota“ Innlent