Rio Tinto vill láta reyna á aðgerðir yfirmanna fyrir dómstólum
sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Frá vinnustöðvuninni í Straumsvík í gærmorgun.Vísir/Vilhelm
Ólafur Teitur Guðnason, upplýsingafulltrúi Rio Tinto Alcan, segir til greina koma að draga úr framleiðslu hjá fyrirtækinu náist ekki sátt í kjaradeilunni við starfsmenn. Fyrst verði látið reyna á fyrir félagsdómi hvort yfirmenn megi ekki skipa út áli frá verksmiðjunni, en slíkar tilraunir yfirmanna voru stöðvaðar af verkfallsvörðum í gær.
Gríðarlegir hagsmunir í húfi
„Þetta er bara til skoðunar og hefur ekki verið tekin endanleg ákvörðun um hvernig að því verður staðið. En það er eitthvað sem verið er að skoða áfram. Það eru miklir hagsmunir í húfi og það væri sérkennilegt að láta svona ágreining um hvar rétturinn liggur, liggja svona óleystan,“ segir hann. Ákvörðun verði væntanlega tekin á næstu dögum.
Þá segir hann að verið sé að íhuga hvort draga þurfi úr framleiðslu á áli. „Ef það verður niðurstaðan að við sjáum ekki fram á að geta selt neitt um ófyrirséðan tíma þá náttúrulega gefur það auga leið að það er fátt annað í stöðunni en að fara að huga að því að draga úr framleiðslu.“
Umræðan ósanngjörn
Ólafur segir fyrirtækið verða af miklum tekjum vegna vinnustöðvunarinnar. „Velta okkar er svona í kringum fimmtíu milljarða á ári. Þannig að það eru tekjurnar á ársgrundvelli sem við fáum ekki ef við getum ekki flutt út álið. Þá fáum við engar tekjur og þá náttúrulega myndi blasa við flestum fyrirtækjum sem sjá ekki fram á að geta selt sína framleiðslu að þá sé spurning til hvers verið sé að framleiða.“
Hann segir umræðu í garð álversins hafa verið óvægna, það hafi meðal annars verið sakað um óbilgirni og offorsi. „Sumir hafa uppi stór orð um afstöðu fyrirtækisins í þessari kjaradeilu. Við buðum í desember sömu launahækkanir og allir aðrir hafa verið að bjóða, ofan á laun sem eru hærri en gengur og gerist, og það er í sjálfu sér óumdeilt að ÍSAL borgar mjög samkeppnishæf laun. Það eina sem við förum fram á í staðinn er sami réttur og allir aðrir hafa. Þannig að það teljum við ekki tilefni til þess að saka okkur um sérstakt offors eða óbilgirni,“ segir Ólafur Teitur.
Um tuttugu yfirmenn í álverinu í Straumsvík gerðu tilraun til að skipa út áli þar í morgun í trássi við útflutningsbann en voru stöðvaðir af verkfallsvörðum.
Félagsdómur úrskurðaði í gærkvöldi að útflutningsbann starfsmanna í álveri Rio Tinto Alcan í Straumsvík væri löglegt og hófst það því á miðnætti. Mun því ekkert ál verða flutt út frá Straumsvíkurhöfn á næstunni. Dómurinn kom saman í kjölfar þess að Samtök atvinnulífsins kærðu bannið fyrir hönd álversins.