Hamilton setti fljótasta tíma sögunnar á Bahrein brautinni í dag. Eftir mistök í fyrstu tilraun síðustu lotu tókst honum að setja saman nánast fullkominn hring undir lok síðustu lotunnar. Ræsingin á morgun verður afar spennandi. Rosberg var aðeins 0,077 sekúndum á eftir Hamilton.
Eftir mikla pólitík í vikunni var tímatökunni ekki breytt eftir slaka frumraun í Ástralíu.
Úrslit fyrstu lotu voru ráðin þegar tvær og hálf mínúta voru eftir af lotunni. Það varð lítil spenna í fyrstu lotu. Fyrirkomulagið virkaði ekki betur í Bahrein en í Ástralíu.
Felipe Nasr á Sauber varð fyrsta fórnarlamb útsláttarins, Rio Haryanto á Manor varð annar. Jolyon Palmer var í hættu á Renault bílnum og tókst ekki nema í eina sekúndu að forða sér frá því að detta út. Stoffel Vandoorne á McLaren setti Palmer aftur niður í útsláttarsæti.
Kevin Magnussen á Renault varð næsta fórnarlamb. Sergio Perez á Force India var næstur, Pascal Wehrlein átti ógnargóðan hring á Manor bílnum og náði 16. sæti.

Önnur lota byrjaði klaufalega, ljósið varð ekki grænt við enda þjónustusvæðisins. Lotan styttist um tæpa mínútu vegna þessa.
Daniil Kvyat á Red Bull var fyrsta fórnarlambið í annarri lotu. Jenson Button á McLaren var næstur. Hinn ungi Stoffel Vandoorne ræsir framar en liðsfélagi sinn Button.
Esteban Gutierrez á Sauber og Vandoorne voru næstir til að detta úr leik. Nico Hulkenberg á Force India var einn á breutinni þegar fimm mínútur voru eftir, hann reyndir að freista þess að komast í þriðju lotu. Það tókst og þá var pressan komin á Romain Grosjean hjá Haas. Með tæpar þrjár mínútur eftir var lotunni raunverulega lokið.
Úrslitalotan bauð upp á baráttu þeirra átta efstu. Rosberg tók ráspól í fyrstu tilraun. Hamilton gerði mistök og var fjórði eftir fyrstu tilraun. Ferrari menn voru á milli Mercedes. Hulkenberg varð fyrstur til að detta út. Williams mennirnir duttu út í kjölfarið. Einungis Ferrari og Mercedes fóru aftur út.
Bein útsending frá keppninni hefst á morgun klukkan 14:30 á Stöð 2 Sport.
Hér fyrir neðan má sjá gangvirkt brautarkort með öllum úrslitum helgarinnar.