Heimsmeistarinn Hamilton ræsir aftastur á morgun eftir bilun í rafaflskerfi bílsins. Rosberg stal ráspólnum af Raikkonen á síðasta hringnum. Ferrari átti ekki svar, Daniel Ricciardo var hetja Red Bull. Hann náði öðru sæti á ráslínu.
Fyrirkomulag tímatökunnar var breytt fyrir kappaksturinn í Kína. Fyrirkomulag síðasta árs var tekið aftur í notkun eftir misheppnaða tilraun til breytinga í upphafi tímabils.
Ráspóllinn í Sjanghæ er ekkert gríðarlega mikilvægur ef marka má söguna. Í sjö af síðustu 12 keppnum hefur ökumaðurinn á ráspól unnið keppnina.
Tímatakan var tímabundið stöðvuð í fyrstu lotu eftir að Pascal Wehrlein á Manor skellti bílnum á varnarvegg. Hann var að fara yfir smá mishæð á ráskaflanum, sem var einnig eini blauti hluti brautarinnar eftir rigningu fyrr í dag.
Lewis Hamilton lenti í vélavandræðum í fyrstu lotu. Mercedes liðið reyndi að gera við bílinn en þegar hann fór aftur út þá kom í ljós að hann gæti ekki sett tíma í lotunni og hann ræsir því líklega aftastur. Óheppnin virðist elta Hamilton þessi misserin.
„Um leið og ég lagði af stað út úr bílskúrnum fann ég að það var eitthvað að. Ég mun reyna allt sem ég get til að taka fram úr mörgum bílum á morgun. Vonandi get ég haft gaman af þessu á morgun,“ sagði Hamilton sem hafði náð báðum ráspólum ársins.

Rosberg fór út á mjúkum dekkjum í annarri lotu og setti tíma sem enginn gat ógnað nema Ferrari. Rosberg mun því ræsa á mjúku dekkjunum á morgun, þau endast lengur og það er gott fyrir keppnisáætlun Rosberg og Mercedes að byrja á þeim frekar en ofur-mjúku dekkjunum.
Vinstra framdekkið á Force India bíl Nico Hulkenberg losnaði af og önnur lotan var stöðvuð og henni þar með lokið.
McLaren og Sauber mennirnir duttu út í annarri lotu ásamt Romain Grosjean á Haas og Felipe Massa á Williams.
Þriðja lotan snérist aðallega um það hvort Ferrari gæti ógnað Rosberg. Eftir fyrstu tilraun var Raikkonen á ráspól og Rosberg annar, Vettel setti ekki tíma fyrr en eftir að aðrir höfðu reynt einu sinni.
Roberg stal svo ráspól aftur í seinni tilrauninni og Daniel Ricciardo á Red Bull blandaði sér í baráttuna og stal öðru sæti á ráslínu.
Bein útsending frá keppninni hefst á Stöð 2 Sport klukkan 5:30 á morgun.
Hér fyrir neðan má sjá öll helstu úrslit helgarinnar á gagnvirku brautarkorti sem uppfærist eftir því sem á líður.