Mihajlovic rekinn frá AC Milan Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 12. apríl 2016 10:46 Vísir/Getty
Sinisa Mihajlovic hefur verið rekinn úr starfi knattspyrnustjóra AC Milan á Ítalíu en liðið hefur gefið verulega eftir í baráttunni um Meistaradeildarsæti síðustu vikurnar. Cristian Brocchi, fyrrum leikmaður AC Milan, mun stýra liðinu út tímabilið en hann hefur að undanförnu starfað sem þjálfari unglingaliðs AC Milan. Brocchi snæddi kvöldverð með Berlusconi í gær en eftir fundinn ákvað eigandinn að hann skyldi verða nýr stjóri liðsins - sá fimmti á aðeins þremur árum. Mihajlovic tók við AC Milan síðastliðið sumar og náði ekki að snúa við slæmu gengi liðsins síðustu árin þar á undan. Liðinu hefur ekki tekist að komast í Evrópukeppni síðustu tvö tímabil og útlitið er dökkt núna en AC Milan hefur spilað fimm leiki í röð án sigurs. AC Milan er í sjötta sæti deildarinnar með 49 stig og er sjö stigum á eftir Fiorentina sem er í fimmta sætinu. Sjötta sætið gæti þó dugað til að komast í Evrópudeild UEFA en Milan er einnig komið í úrslitaleik bikarsins sem veitir einnig þátttökurétt í keppninni. Brocchi er fertugur og er uppalinn hjá Milan. Hann spilaði einnig með Hellas Verona, Inter, Fiorentina og Lazio á ferlinum en lengst af hjá Milan.
Ítalski boltinn Mest lesið Kjartan Atli lætur af störfum Körfubolti Indverjar brjáluðust út í Messi og brutust inn á völlinn Fótbolti „Ég held að þetta hafi ekki verið kveðjustund“ Enski boltinn Salah lagði upp í endurkomunni en Ekitike sá um mörkin Enski boltinn Ian Rush lagður inn á sjúkrahús Enski boltinn Sakna Orra enn sárt og vandræðin aukast Fótbolti Mesta heillaskref ferilsins að hafa verið rekinn Enski boltinn Körfuboltakvöld í áfalli yfir vörn Álftaness: „Bara kjánalegt að horfa á þetta“ Körfubolti Dýrmætur tími með börnunum áður en alvaran tekur við Fótbolti Spara margar milljónir vegna ráðningar Rúnars Handbolti Fleiri fréttir „Verstu 48 klukkustundirnar“ síðan að hann kom til Chelsea Evrópumeistararnir í vandræðum með botnliðið Raphinha reddaði málunum fyrir Börsunga Brynjólfur með langþráð mark Í beinni: Arsenal - Wolves | Toppliðið tekur á móti botnliðinu Fulham vann í markaleik á Turf Moor Ian Rush lagður inn á sjúkrahús Viktor Bjarki skoraði enn eitt markið Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik „Kannski áttum við heppnina skilið í dag“ „Ég held að þetta hafi ekki verið kveðjustund“ „Þegar þú spilar fyrir Liverpool verðurðu bara að vinna leiki“ Salah lagði upp í endurkomunni en Ekitike sá um mörkin Cecilía fagnaði stórsigri gegn erkifjendunum Vigdís Lilja lét toppsætið af hendi Palmer skoraði í fyrsta sinn síðan í september Katla í markaskónum og Ingibjörg hélt hreinu Stöngin inn hjá Ásdísi skilaði sigri Mesta heillaskref ferilsins að hafa verið rekinn Indverjar brjáluðust út í Messi og brutust inn á völlinn Dýrmætur tími með börnunum áður en alvaran tekur við Sakna Orra enn sárt og vandræðin aukast Varalesturinn flæktist fyrir þýska tvíeykinu „Held að ég gæti ekki hætt í fótbolta“ Salah snýr aftur eftir sáttafundinn Þjálfari meistaranna á hálum ís Axel verður áfram hjá Aftureldingu 38 ára Jamie Vardy að skrifa söguna fyrir enska leikmenn á Ítalíu Launað ríkulega fyrir að koma Norðmönnum á HM Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH Sjá meira