EM dagbók: Ég hafði engan eins og Lars Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. júní 2016 07:00 Lars Lagerbäck hefur reynst strákunum okkar vel. vísir/anton brink
Er hægt að fresta EM um tvær vikur? Ég hef oft hugsað til þess síðustu vikurnar að það væri fínt að ýta mótinu aftur um fáeina daga, kannski 1-2 vikur. Ég, eins og reyndar öll íslenska þjóðin, er í raun að renna blint í sjóinn þegar kemur að aðkomu minni að EM í Frakklandi sem fjölmiðlamaður. Tilhlökkunin fyrir mótið er auðvitað mikil en stressið er sannarlega líka fyrir hendi. Ég hef þó orðið þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að upplifa ýmislegt. Ófáa landsleiki á erlendri grundu, Ólympíuleika, stórmót í handbolta og aðra stóra viðburði. Ég var líka með U-21 strákunum í Danmörku á sínum tíma. En það er einfaldlega svo að ekkert af þessu er í líkingu við þátttöku A-landsliðs karla í lokakeppni stórmóts. Það hefur verið að gríðarlega mörgu að huga. Við þurfum að gera mótinu skil í sjónvarpi, blaði, útvarpi og á neti og okkur er það mikið kappsmál að færa stemninguna til okkar áhorfenda, lesenda og hlustenda eins vel og kostur er.Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar frá Annecy.vísir/stefánÞað hafa verið haldnir margir fundir. Það hafa verið sendir ótal tölvupóstar. Málin hafa verið rædd formlega og óformlega. Spurningum hefur verið dembt á þolinmóða starfsmenn KSÍ og hár hefur verið reytt yfir gríðarlega þungu og ströngu ferli sem fylgir því að verða sér úti um fjölmiðlapassa á EM og leiki Íslands. Í fyrradag héldum við einn lokafund með EM-hópi okkar og því starfsfólki sem mun sjá um að taka á móti efninu okkar hér heima. Ótrúlegt nokk fannst mér að það hafi tekist að ræða öll þau mál sem hægt var að ræða. Svo verður bara að koma í ljós hvernig þetta verður allt saman – hvort áætlanir okkar gangi eftir og þær hugmyndir sem við höfum geti orðið að veruleika. Við verðum bara að sjá til því ekkert okkar hefur jú gert þetta áður. Ég hef það á tilfinningunni að þetta sé að einhverju leyti svipað með íslenska landsliðið – strákana okkar sem ætla sér svo stóra hluti á EM. Langt og strangt undirbúningsferli er að baki, þeir hafa gert allt sem þeir geta til að halda sér heilum og tilbúnum í slaginn. Svo bara halda þeir út í stóra daginn þegar hann rennur upp og bæði vona og gera sitt besta. Ég hafði þó engan reynslubolta sem hefur fjallað um mörg stórmót í fótbolta til að segja mér til og gefa mér ráðleggingar. Landsliðið hefur Lars Lagerbäck og mikilvægi hans í landsliðinu hefur aldrei verið meira en nú. Það ætti að róa taugar strákanna. EM byrjar í dag og keppninni verður ekki frestað. Við erum mætt til Frakklands og klár í slaginn, hvað svo sem tekur við, og ég veit að strákarnir eru það líka. Fylgist með okkur í öllum okkar miðlum en einnig samfélagsmiðlum (VisirSport á Facebook og Twitter – sport365 á Snapchat) og fáið EM-stemninguna beint í æð!
EM 2016 í Frakklandi Tengdar fréttir Gylfi: Algjör skandall fyrir Portúgal ef þeir tapa stigum á móti Íslandi "Það væri fínt að vinna einhverja leiki," segir Gylfi Þór Sigurðsson aðspurður um hvað hann vilji sjá íslenska landsliðið gera á Evrópumótinu í Frakklandi. EM hefst á morgun en fyrsti leikur Íslands er á þriðjudaginn kemur. 9. júní 2016 12:00 Kolbeinn: Erum góðir gegn toppliðunum "Stemningin er alltaf góð í þessum hóp. Það er gott að vera kominn,“ segir framherjinn Kolbeinn Sigþórsson en landsliðið er komið til Annecy í Frakklandi eins og flestum ætti að vera kunnugt um. 9. júní 2016 11:00 Kósóvó bætist í riðil Íslands fyrir undankeppni HM 2018 Strákarnir okkar mæta miðverði ÍBV í undankeppni HM 2018 í fótbolta. 9. júní 2016 18:16 Ísland fimmtánda besta liðið á EM samkvæmt ESPN | Ungverjar slakastir Í tilefni af því að EM hefst á morgun með opnunarleik Frakka og Rúmena fékk ESPN blaðamanninn Miguel Delaney til að raða liðunum 24 sem taka þátt í Frakklandi í röð eftir styrkleika. 9. júní 2016 17:45 Eiður Smári í úrvalsliði UEFA skipað eldri leikmönnum Eiður Smári Guðjohnsen, reyndasti leikmaðurinn í íslenska hópnum, er í draumaliði UEFA skipuðu leikmönnum 35 ára og eldri sem taka þátt á EM. 9. júní 2016 15:00 Mest lesið Åge Hareide látinn Fótbolti Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Handbolti Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Handbolti Strasbourg - Breiðablik 3-1 | Hetjuleg barátta dugði skammt Fótbolti Snorri kynnti EM-strákana okkar Handbolti „Eitt ótrúlegasta augnablik sem þú sérð í hvaða íþrótt sem er“ Sport Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Handbolti Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 93-83 | Enn taplausir í Sláturhúsinu Körfubolti Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Enski boltinn ÍR - Valur 82-85 | Baráttusigur í Breiðholti Körfubolti Fleiri fréttir Davíð sendir hjartnæma kveðju til Hareide Svona endaði Sambandsdeildin: Finnarnir áfram eftir jafntefli við Palace Strasbourg - Breiðablik 3-1 | Hetjuleg barátta dugði skammt Napoli í úrslit í Sádi-Arabíu Åge Hareide látinn Amorim vill Neves Benti á hinn íslenska Dan Burn „Við þurfum bara að keyra á þetta“ Segir Nóel Atla frábært dæmi um það þegar hlutirnir gangi upp Glódís gæti þurft að ryðja Man. Utd og Barcelona úr vegi að úrslitaleiknum Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Evrópusumma Blika komin í 800 milljónir og gæti nálgast milljarð í kvöld Liðsfélagi landsliðsmanns missti unga frændur sína í sprengingu Forsætisráðherrann hótar Roman Abramovich og segir að „klukkan tifi“ Bíður eftir kallinu frá Arnari: „Myndi segja að ég væri klár“ „Sýnum kvennaíþróttir af því að þær eru frábærar“ Úr Bestu deild yfir í að slá í gegn í Meistaradeild: „Ég elska pressuna“ Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Fótboltamaður skotinn til bana Spilar áfram með Messi í Miami Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Vålerenga úr leik eftir tap fyrir stöllum Glódísar Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram Varði fjögur víti til að tryggja PSG titilinn Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur Fjórir frá hjá Blikum á morgun Benítez lét Sverri byrja og flaug áfram í bikarnum KSÍ missti af meira en milljarði króna Sjá meira
Gylfi: Algjör skandall fyrir Portúgal ef þeir tapa stigum á móti Íslandi "Það væri fínt að vinna einhverja leiki," segir Gylfi Þór Sigurðsson aðspurður um hvað hann vilji sjá íslenska landsliðið gera á Evrópumótinu í Frakklandi. EM hefst á morgun en fyrsti leikur Íslands er á þriðjudaginn kemur. 9. júní 2016 12:00
Kolbeinn: Erum góðir gegn toppliðunum "Stemningin er alltaf góð í þessum hóp. Það er gott að vera kominn,“ segir framherjinn Kolbeinn Sigþórsson en landsliðið er komið til Annecy í Frakklandi eins og flestum ætti að vera kunnugt um. 9. júní 2016 11:00
Kósóvó bætist í riðil Íslands fyrir undankeppni HM 2018 Strákarnir okkar mæta miðverði ÍBV í undankeppni HM 2018 í fótbolta. 9. júní 2016 18:16
Ísland fimmtánda besta liðið á EM samkvæmt ESPN | Ungverjar slakastir Í tilefni af því að EM hefst á morgun með opnunarleik Frakka og Rúmena fékk ESPN blaðamanninn Miguel Delaney til að raða liðunum 24 sem taka þátt í Frakklandi í röð eftir styrkleika. 9. júní 2016 17:45
Eiður Smári í úrvalsliði UEFA skipað eldri leikmönnum Eiður Smári Guðjohnsen, reyndasti leikmaðurinn í íslenska hópnum, er í draumaliði UEFA skipuðu leikmönnum 35 ára og eldri sem taka þátt á EM. 9. júní 2016 15:00