„Þegar leikurinn byrjar verður þurrt og 10-12 stiga hiti með hægviðri en það gætu komið dropar í lok leiksins,“ segir Björn Sævar Einarsson vakthafandi veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands aðspurður hvernig veðrið verður á Arnarhóli meðan leikur Íslands og Englands fer fram í kvöld í 16-liða úrslitum Evrópumótsins í knattspyrnu karla. Komið verður risaskjá við hólinn í dag þar sem leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu.
Þá er ekki spáð miklum vindi, rétt um þremur metrum á sekúndu eða svo. Veðrið ætti því ekki að stoppa neinn í því að horfa á leikinn á Arnarhóli í dag en um stærsta leik íslenska landsliðsins er að ræða. Það má því búast við mikilli stemningu en leikir Íslands á EM hafa hingað til verið sýndir á risaskjá á Ingólfstorgi. Mun fleirir komast hins vegar fyrir á Arnarhóli.
Veðurspáin í dag og næstu daga er annars sem hér segir:
Suðaustlæg eða breytileg átt, 3-10, skýjað að mestu og skúrir í flestum landshlutum. Úrkomuminna í nótt, en norðlæg og síðar breytileg átt 3-10 með rigningu í fyrramálið fyrir norðan. Hvassari norðanátt á Vestfjörðum og Snæfellsnesi. Allvíða skúrir sunnantil. Hægari A-læg átt annað kvöld og dálítil væta. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast NA-til í dag, en S-lands á morgun.
Á miðvikudag:
Austlæg átt, 3-10 og rigning SA-lands, en víða síðdegisskúrir annars staðar. Hiti 10 til 16 stig, hlýjast norðan- og vestanlands.
Á fimmtudag:
Norðaustlæg átt, 3-10. Skúrir, einkum síðdegis. Hiti 7 til 15 stig, svalast A-lands.
Á föstudag:
Norðan 5-13. Rigning norðaustan- og austanlands og hiti 5 til 10 gráður en annars bjartviðri og allt að 18 stiga hiti sunnanlands.
Á laugardag:
Norðan 5-10 og rigning með köflum norðantil en sums staðar skúrir sunnanlands. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast sunnanlands.
Á sunnudag og mánudag:
Hæg norðlæg átt, skýjað en úrkomulítið norðanlands en síðdegisskúrir sunnanlands. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast sunnanlands.
