Axel Bóasson úr GK, hafði eins höggs forskot fyrir hringinn í dag, en hann lék á 69 höggum eða -2 og er hann einu höggi á eftir þeim Bjarka og Guðmundur fyrir lokahringinn.
Staða efstu manna fyrir lokahringinn á Íslandsmótinu í golfi á Eimskipsmótaröðinni 2016:
Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR (72-68-66) 206 högg -7
Bjarki Pétursson, GB (72-69-65) 206 högg -7
Aron Snær Júlíusson, GKG (67-73-67) 207 högg -6
Axel Bóasson, GK (71-67-69) 207 högg -6
Andri Már Óskarsson, GHR (73-67-66) 208 högg -5
Haraldur Franklín Magnús, GR (71-71-67) 209 högg -4
Birgir Leifur Hafþórsson, GKG (69-70-71) 210 högg -3
Þórður Rafn Gissurarson, GR (71-71-69) 211 högg -2
Aron Bjarki Bergsson, GKG (70-72-69) 211 högg -2
Gísli Sveinbergsson, GK (72-67-72) 211 högg -2
Rúnar Arnórsson, GK (72-67-72) 211 högg-2
Andri Þór Björnsson, GR (72-73-67) 212 högg -1
Andri Þór Björnsson, GR (72-73-67) 212 högg -1
Alfreð Brynjar Kristinsson, GKG (71-72-70) 213 par
Valdís Þóra Jónsdóttir úr golfklúbbnum Leyni sló dag vallarmet í kvennaflokki á Jaðarsvelli en hún fór hringinn á 66 höggum eða fimm höggum undir pari.
Það stefnir í mikið einvígi á lokahringnum á milli Valdísar og Ólafíu Þórunnar Kristinsdóttur úr GR sem er einu höggi á eftir á -6. Valdís fékk fimm fugla í dag og tapaði ekki höggi en Ólafía lék á 69 höggum eða -2. Þetta kemur fram á vefsíðunni golf.is.
Staða efstu kylfinga fyrir lokahringinn á Íslandsmótinu í golfi á Eimskipsmótaröðinni 2016:
1. Valdís Þóra Jónsdóttir, GL (71-69-66) 206 högg -7
2. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR (70-68-69) 207 högg -6
3. Signý Arnórsdóttir, GK (77-68-71) 216 högg +3
4. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK (72-72-73) 217 högg +4
5. Anna Sólveig Snorradóttir, GK (75 -75-73) 223 högg +10
6. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR (77-76-73) 226 högg +13
7. Berglind Björnsdóttir, GR (75-75-77) 227 högg +14
8. Gunnhildur Kristjánsdóttir, GK (74-79-76) 229 högg +16
Golfsamband Íslands er með beina lýsingu frá mótinu á Twitter-síðu sinni en hægt er að fylgjast með öllu sem gerist á Jaðarsvelli í Twitter-boxinu hér að neðan. Hér má svo finna beina lýsingu holu fyrir holu og hér er hefðbundin staða þar sem hægt er að fletta á milli flokka.