Bandaríkin rústaði Kína Anton Ingi Leifsson skrifar 7. ágúst 2016 00:06 Durant setur puttann upp í loft. vísir/getty
Ástralía og Bandaríkin byrjuðu á sigri á Ólympíuleikunum í Ríó, en körfuboltinn fór af stað á leikunum í dag. Bandaríkin rúllaði yfir Kína, en það var ljóst að stjörnuprýtt lið Bandaríkjanna myndi ekki lenda í miklum vandræðum gegn Kína. Staðan eftir fyrsta leikhluta var 30-10 og í hálfleik leiddu Bandaríkjamenn, 59-30. Lokatölur urðu svo 57 stiga sigur Bandaríkjana, 119-62, en riðlakeppnin í mótinu er oftar en ekki leikur einn fyrir bandaríska liðið. Kevin Durant skoraði 25 stig fyrir Bandaríkin, en Yi Jianlian var stigahæstur hjá Kína einnig með 25 stig. Allir leikmenn Bandaríkjanna komust á blað, en næstur Durant var DeMarcus Cousins með 17 stig. Nokkuð óvænt úrslit áttu sér hins vegar í hinum leik dagsins þegar Ástralía gerði sér lítið fyrir og lagði Frakkland af velli 87-66. Staðan í hálfleik var 36-33 fyrir Ástralíu í hálfleik. Patty Mills, leikmaður San Antonio Spurs, var stigahæstur hjá Ástralíu með 21 stig og Andrew Bogut kom næstur með 18 stig. Tony Parker dró vagninn hjá Frakklandi sem fyrr, en hann skoraði átján stig. Þetta var annar stærsti sigur Ástralíu í upphafsleik á Ólympíuleikunum frá upphafi, en sá stærsti kom gegn Kóreu á leikunum 1996. Þeir spila næst við hörkulið Serba.
Ólympíuleikar 2016 í Ríó Mest lesið Björn Borg tók of stóran skammt af eiturlyfjum Sport Róbert hættir hjá HSÍ Handbolti Kastaði stól í Eyjum og fékk þriggja leikja bann Handbolti Enduðu á nærbuxunum og gátu ekki flogið Fótbolti Sjáðu dramatíkina á Anfield: Van Dijk skoraði og Simeone brjálaðist Fótbolti „Þessi viðbrögð eru auðvitað ekki í lagi“ Fótbolti „Maður spyr sig hvar maður á heppnina inni“ Íslenski boltinn Fékk viljandi rautt og gæti misst af úrslitaleiknum Íslenski boltinn Vann Ólympíubrons en ætlar að keppa á Steraleikunum og slá heimsmetið Sport Skylda að klippa vel neglur í handbolta Handbolti Fleiri fréttir Ólöf Helga tekur við stjórninni: „Orðnar mjög spenntar fyrir fyrsta þætti“ NBA Evrópudeildin muni hefjast eftir tvö ár Tryggvi varði flest skot á EM og tók næstflest fráköst Þjóðverjar Evrópumeistarar í annað sinn Grikkir stálheppnir að landa bronsinu Tyrkir pökkuðu Giannis og Grikkjum saman á leið í úrslit „Að spila á Íslandi er frábært tækifæri fyrir mig“ Þjóðverjar í úrslit EM í fyrsta sinn í tuttugu ár Bertone á leið í Stjörnuna en byrjar í fimm leikja banni Annar fyrrverandi leikmaður Sacramento Kings til Álftaness Telur ólíklegt að Kawhi eða Clippers verði refsað Slóvenar saltvondir út í dómarana: „Hvað er hægt að segja?“ Þjóðverjar í undanúrslit þrátt fyrir stórleik Doncic Álftanes mætir stórliði Benfica Finnar afgreiddu Georgíu með stæl Grikkland í undanúrslit á EM Tyrkir hentu Íslandsbönunum úr leik Njarðvíkingar semja við öðruvísi Kana Ísraelar númeri of litlir fyrir Grikki Slóvenar sluppu með skrekkinn gegn Ítölum Óvænt þegar Georgía sló Frakkland út Nýi ríkisborgarinn leiddi Pólverja til sigurs Angel Reese í hálfs leiks bann Kobe Bryant á ennþá langvinsælustu skóna í NBA Finnar með einn óvæntasta sigur í sögu EM Stórleikur Porzingis dugði Lettum skammt Unnu lokaleikhlutann með 26 stigum Sengün stórkostlegur þegar Tyrkir komust í átta liða úrslit Valsmenn búnir að finna Kana Gaf báðum stelpunum sem hann datt á áritaða treyju Sjá meira