Maria Nila línan skiptist í þrjá flokka sem eru sjampó, næringar og djúpnæringar ásamt mótunarvörum og hinum vinsælum litahárnæringum. Með litahárnæringunum má viðhalda eigin lit hársins, hylja ef til vill aðeins gráu hárin eða hreinlega breyta um tón. Fríða segir litahárnæringuna duga í 10-20 þvotta og bætir því við að það fari dálítið eftir ástandi hársins hvernig hárið tekur við litanæringunum og hversu lengi þær haldast í hárinu.
Næringarnar eru 13 talsins og má nota einar og sér eða til að blanda sérstakan lit. Það er einnig hægt að deyfa litinn eins hentar. „Ef þú vilt til dæmis bleikt hár en ekki eins bleikt og PinK Pop er, þá er hægt að blanda hvítri hárnæringu saman við blönduna og hún mildast. Magnið af næringunni fer eftir hvað þú vilt milda tóninn mikið niður en margar konur velja að setja tvær blöndur í hárið, þá aðra í dýpri í rótina og hina sem er mildari í lengdina og endana, en þá bara pumpar maður meira af hvítri næringu út í blönduna eftir rótarlitunina,“ segir Fríða.

,,Konur sem byrja að nota hann heillast nær samstundins þar sem hann eyður gulum litatónum í hárinu og frískar vel upp á það. Þá vilja þær sem eru með mjög hvítan lit fá þennan fjólubláa/gráa lit sem er svo vinsæll núna.“
Eins og áður segir er Maria Nila línan 100% vegan og skrásett sem Peta, Leaping Bunny og Vegan Society. Sumar af vörunum eru meðal annars glútenfríar hárvörur en nánari upplýsingar um þær er hægt að fá á hársnyrtistofum og á vefsíðunni www.marianila.com



