Surface Studio er fyrsta borðtölva Microsoft og er hún, líkt og iMac-tölvur Apple, heildstæð tölva þar sem vélbúnaðurinn er innbyggður í skjáinn. Skjárinn, og þar með tölvan, er 28 tommur og er hann snertiskjár.
Hægt verður að notast við nýtt tæki, Surface Dial, sem er eins konar hnappur sem maður leggur á skjáinn og snýr, til að mynda til að auka aðdrátt eða snúa myndum.
Kynningu á skjánum má sjá að neðan.
Fyrir hefðbundna notkun er einnig hægt að tengja mús og lyklaborð við tölvuna. Hún virðist sérsniðin að listamönnum og hönnuðum og kostar ódýrasta gerðin um 350 þúsund krónur í forpöntun. Sú dýrasta kostar um hálfa milljón.
Önnur kynslóð fartölvulínu Microsoft, Surface Book, mun kosta á milli 170 og 270 þúsund krónur í forpöntun. Líkt og fyrri kynslóðin er hún útbúin snertiskjá. Innvols tölvunnar er hins vegar sagt mun betra. Rafhlaðan á að endast í sextán klukkustundir og kom fram á viðburðinum í gær að hún væri þrefalt öflugri en þrettán tommu MacBook Pro.
Þrívíddaruppfærsla fyrir Windows 10
Microsoft kynnti einnig uppfærslur fyrir Windows 10, sérstaklega ætlaðar listamönnum. Þær uppfærslur munu detta inn snemma á næsta ári notendum að kostnaðarlausu.
Á meðal nýjunga er ný útgáfa af teikniforritinu Paint sem mun gera notendum kleift að búa til þrívíddarlíkön sem hægt verður að deila á meðal annars Facebook. Til að styðja við nýja útgáfu Paint munu Windows-snjallsímar geta skannað hluti í raunheimum sem svo verður hægt að flytja inn í Paint eða nýja útgáfu glæruforritsins PowerPoint. Einnig munu notendur geta virt þrívíddarlíkönin fyrir sér, kaupi þeir þar til gerð gleraugu.
Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu