Alger umskipti verða á þingheimi eftir nýafstaðnar kosningar. Helmingur þingheims er fólk sem hefur ekki setið á þingi áður. Ef marka má Facebooksíður hinna nýju þingmanna kemur í ljós að þeir eru flestir hverjir þakklátir og nánast í geðshræringu, klökkir og hvergi sparir á fróm fyrirheit. Einn þeirra ætlar að ganga í það verk að þrífa híbýli sín hátt og lágt eftir strembna kosningabaráttu.
Stolt og hrærð
Þeir eru þó margir sem ekki hafa hugað að sínum Facebookvegg eftir strembna kosninganótt.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gísladóttir Sjálfstæðisflokki hefur ekki komist til að tjá sig á Facebook eftir að niðurstaðan lá fyrir en það hefur Píratinn Eva Pandora Baldursdóttir hins vegar gert:

Ég fékk þingsæti. Vá!
Teitur Björn Einarsson Sjálfstæðismaður, Guðjón S. Brjánsson Samfylkingarmaður og Páll Magnússon hafa ekki enn splæst kveðju á vini sína á Facebook en það hefur hins vegar Píratinn Smári MacCarthy gert:

Knöpp skilaboð Ari Trausti Guðmundsson Vinstri grænum er hins vegar öllu vanur og hann þarf færri orð: „Bestu þakkir til allra sem senda hamingjuóskir hingað í kotið. Þær ylja.“
Jóna Sólveig Elínardóttir Viðreisn hefur ekki komist til þess að safna tilfinningum sínum saman á Facebook. Nýjasta nýtt frá henni er mynd af henni sjálfri ásamt vinkonu sinni: „Þreyttar en hrikalega hressar! #kosningar #Viðreisn“
Theodóra S. Þorsteinsdóttir Bjartri framtíð er ánægð: „Kjósendur í Suðvesturkjördæmi komu mér hressilega á óvart. Yfir 10% kusu Bjarta framtíð í kjördæminu og sendu mig á þing. Eitthvað svo mögnuð staða og ekki eitthvað sem ég gat ímyndað mér fyrir örfáum árum síðan. Takk!“
Jón Steindór Valdimarsson Viðreisn er nýr þingmaður sem ekki hefur enn tjáð sig á Facebook eftir að niðurstaðan lá fyrir né heldur Þórhildur Sunna Ævarsdóttir Príati. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Sjálfstæðisflokki er ekki orðmörg: „Orðlaus. Takk!“
Þorsteinn Víglundsson í Viðreisn hefur ekki tjáð sig eftir að niðurstaðan lá fyrir. Né flokksystir hennar Hanna Katrín Friðriksson en hamingjuóskir vina hrannast inn á vegg hennar.
Mun standa í þrifum í dag
Kolbeinn Óttarsson Proppé í Vinstri grænum er hins vegar nánast klökkur á Facebooksíðu sinni.

Mössum þetta!
Annar nýr þingmaður sem hefur tjáð sig á Facebook er Píratinn Gunnar Hrafn Jónsson.

Áður hafði Gunnar Hrafn sagt að í sumar hefði það hljómað sem einkennilegur „draumur sem maður fær eftir að borða of mikinn ost fyrir svefninn: "Eftir nokkrar vikur átt þú eftir að vera í beinni útsendingu á kosningavöku að skreyta köku með Árna Páli og Þorgerði Katrínu. Svo mætir Jói Fel á svæðið og dissar þig. En það verður allt í lagi því seinna um kvöldið verður þú kosinn á þing. Verst samt að Össur Skarphéðinsson dettur um leið út af þingi og þú breytist í múrmeldýr." - just one of those things is wrong.“
Formleg í fasi á Facebook
Lilja Dögg Alfreðsdóttir Framsóknarflokki er nýr þingmaður þó hún þekki þingið vel eftir að hafa gengt stöðu utanríkisráðherra undanfarnar vikurnar. Hún er formleg í fasi á Facebook.

Miðað við skoðanakannanir þá hefur Framsóknarflokkurinn unnið varnarsigur. Við fundum fyrir meðbyr á lokasprettinum vegna þeirra málefna sem við töluðum fyrir og þess árangurs sem náðst hefur á kjörtímabilinu. Ljóst er að Framsókn á fullt erindi í íslenskum stjórnmálum.
Hringinn í kringum landið lögðu Framsóknarmenn mikið á sig til að vinna flokknum fylgi. Það starf er óeigingjarnt og skilaði sér í góðri og heiðarlegri baráttu. Þetta er áminning um það að flokkurinn er sterkur þegar á reynir. Ég vil þakka ykkur öllum fyrir ómetanlegt framlag. Einnig er ég mjög þakklát fyrir stuðninginn hér í Reykjavík og að vera orðinn þingmaður.
Kær kveðja, Lilja“
Takk fyrir að kjósa mig á þing
Svo mörg voru þau orð. Nýjasta nýtt hjá Nichole Leigh Mosty í Bjartri framtíð á hennar Facebookvegg er: „Ég held að ég ætla að treysta á þetta sem síðasta orð kvöldsins... sjá til hvað morgun daginn færi mig.“ Hún vísar í frétt mbl.is þar sem segir að Óttarr Proppé sé eini karlinn í þingliði BF og jafnframt það að Nichole sé inni.
Pawel Bartozsek Viðreisn er kátur en uppgefinn eftir að hafa verið á hringekju uppbótarþingmanna lengstum nætur: „„Þetta var löng nótt,“ segir Pawel og sendir mynd af sér þar sem segir: „Takk fyrir að kjósa mig á þing.“
Njáll Trausti Friðbergsson Sjálfstæðisflokki er enn einn nýr þingmaðurinn og hann hefur ekki komið því við að kasta kveðju á Facebookvini sína eftir spennuþrungna nótt.
Takk elskurnar mínar
Einar Aðalsteinn Brynjólfsson Pírötum er í talsverðri geðshræringu og hann ritar sæmilega langan þakkarpistil á sína Facebooksíðu sem hann hefur á spurningunni: Hvernig þakkar maður fyrir sig?

Ég neita því ekki að ég velti stundum vöngum yfir því hversu miklu einfaldara líf mitt hefði verið ef ég hefði ekki stigið þetta örlagaríka skref, en ég hef sjaldnast valið auðveldu leiðina og sé svo sannarlega ekki eftir neinu,“ segir Einar og þakkar þeim sem komu að málum. Segir þá: „Ég get fullvissað alla þá sem komið hafa að þessu ævintýri að ég mun gera mitt besta til að standa undir þeim væntingum sem til mín eru gerðar.
Takk, elskurnar mínar, fyrir óeigingjarnt framlag ykkar til að koma mér á þennan stað!!!
Ykkar, Einar Brynjólfsson“
Benedikt þrengir möguleika
Síðastur á lista yfir nýja þingmenn í þessari samantekt er maðurinn sem allra augu beinast nú að, sá sem hefur í hendi sér hvernig næsta ríkisstjórn verður saman skrúfuð. Nefnilega formaður Viðreisnar, Benedikt Jóhannesson. Hann hefur, eftir að úrslit lágu fyrir, ekki tjáð sig á Facebook. Enda, hefur hann vart haft tíma til þess því hann hefur verið í sjónvarpsviðtölum í alla nótt og í dag. Þar hefur hann útilokað samstarf við stjórnarflokkanna, eins og hann hefur áður sagt og hann útilokar jafnframt fimm flokka stjórn sem þá myndi halla sér til vinstri. Staðan í dag, hvað varðar stjórnarmyndun hefur því flækst og virðist stefna í stjórnarkreppu.