Þetta segir Einar Andri Einarsson, þjálfari toppliðs Aftureldingar í Olís-deild karla í handbolta og sérfræðingur 365 um HM í Handbolta, um byrjunina á leik strákanna okkar gegn Spáni í kvöld. Ísland var tveimur mörkum yfir í hálfleik, 12-10, en tapaði síðari hálfleiknum með átta mörkum og leiknum með sjö mörkum, 27-21.
Sjá einnig:Rúnar: Þeir lásu okkur eins og opna bók
„Við stýrðum hraðanum vel í fyrri hálfleik og Björgvin auðvitað í heimsklassa í markinu. Mér fannst leikurinn vel settur upp. Byrjunarliðið virkaði vel og þó að við rúlluðum á liðinu skiluðu allir einhverju bæði í vörn og sókn. Fyrri hálfleikurinn var frábær,“ segir Einar Andri, en hvað gerðist þá í þeim síðari?
„Við missum agann í fyrstu tveimur sóknunum. Við förum í tvær aðgerðir í röð eftir svona 25 sekúndur á miðað við það, að við vorum að eiga mínútu langar sóknir og velja færin vel í fyrri hálfleik. Við missum agann og taktinn úr þessu og svo voru brottvísanirnar svakalega dýrar.“

Íslenska liðið var enn þá yfir eftir tíu mínútur í seinni hálfleik en þá fór allt í lás í sóknarleiknum. Hann var ekki góður, frekar hægur og fyrirsjáanlegur.
„Það hættu allir að sækja á markið og hættu að reyna að vinna stöðuna maður á mann og draga í sig næsta varnarmann. Þá lenti þetta rosalega á Ólafi og Rúnari þar sem þeir þurftu að skjóta á markið úr erfiðum stöðum. Það er ósanngjarnt að kenna þeim um þetta. Það var bara sama hver kom inn á í seinni hálfleik það gerðist lítið og þá kom óöryggi í þetta. Menn hættu að sækja á markið, fóru í staðinn að sækja til hliðar og þá fengu Spánverjarnir hraðaupphlaup,“ segir Einar Andri.
Arnar Freyr Arnarsson átti stórleik í sínum fyrsta landsleik og Björgvin var flottur í markinu. Einar Andri sér jákvæða punkta eftir fyrsta leik.
„Það er ekki spurning. Björgvin Páll var í heimsklassa í leiknum og Arnar Freyr sýndi að hann verður þarna á línunni næstu fimmtán árin. Þetta var geggjuð byrjun á landsliðsferli. Það verður erfitt að finna betri fyrsta leik á heimsmeistaramóti,“ segir Einar Andri.
„Varnarleikurinn var í heildina góður og Bjöggi frábær. Arnar var frábær og fyrri hálfleikurinn þó allt detti niður í seinni hálfleik. Það er alveg hægt að horfa jákvæðum augum á þetta. Við erum búnir með erfiðasta leikinn og hann var enginn skandall. Menn lögðu allt í þetta. Það er það sem við viljum,“ segir Einar Andri Einarsson.
Ekki missa af neinu sem gerist á HM í Frakklandi. Vísir er með öflugt fréttateymi á mótinu sem færir ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).