Kia Optima tengiltvinnbíll og langbakur frumsýndir Finnur Thorlacius skrifar 12. janúar 2017 13:37 Kia Optima er loksins kominn í langbaksútfærslu.
Kia byrjar nýja árið af krafti eins og það endaði síðasta ár eftir að hafa náð öðru sætinu yfir mest seldu bílamerkin á Íslandi. Tvær nýjar útfærslur úr Optima-línu Kia verða frumsýndar hjá Bílaumboðinu Öskju nk. laugardag 14. janúar kl. 12-16. Um er að ræða Optima Plug-In-Hybrid og Optima Sportswagon. Optima í Plug-In-Hybrid útfærslu er búinn tvinnvél sem samanstendur af rafmótor og 2,0 lítra bensínvél. Þannig sameinar bíllinn kosti umverfisvæna sparneytni rafbílsins og kraft bensínvélarinnar. Tvinnvélin skilar alls 205 hestöflum og eyðslan er aðeins frá 1,6 lítrum á hundraðið. Drægni bílsins á rafmagninu eingöngu er 54 km við bestu aðstæður. Optima er fyrsti Plug-In-Hybrid bíllinn frá Kia og því sannkallaður tímamótabíll frá suður-kóreska bílaframleiðandanum. Bílinn má hlaða í venjulegri 220v heimilisinnstungu eða heimahleðslustöð. Hleðslutími er um tvær og hálf klukkustund í heimahleðslustöð og um fimm klukkustundir í venjulegri heimilisinnstungu. Optima Sportswagon er rúmbetri útgáfa af hinum sígilda Optima. Hinn nýi Sportswagon býður upp á meira farangurspláss og er ríkulega búinn öryggis- og þægindabúnaði sem tryggja framúrskarandi akstur. Bíllinn er með 1,7 lítra dísilvél sem skilar 141 hestafli og eyðslan er frá 4,4 lítrum á hundraðið. Báðar gerðirnar eru að sjálfsögðu með 7 ára ábyrgð eins og allir nýir Kia bílar en enginn bílaframleiðandi býður upp á jafn langa ábyrgð á bílum eins og Kia.Optima fæst nú sem tengiltvinnbíll, langbakur og í kraftaútfærslu með 245 hestafla vél.Ekki slorlegur að innan.Sannarlega laglegir bílar.
Mest lesið Gripinn glóðvolgur í skjóli nætur við að tappa af bílnum Innlent Sagði sig úr þingmannahóp: „Ég læt ekki nota mig í slíkum tilgangi“ Innlent Rok og rigning sama hvert er litið Veður Díselþjófar staðnir að verki: „Þetta er búið að kosta okkur milljónir“ Innlent „Í minningu sonar - og allra þeirra sem aldrei komu heim“ Innlent MBA-nemi kvartaði og kveinaði en beið lægri hlut Innlent Hjólreiðamaður slasaður við Kerlingarfjöll Innlent Erlendur ferðamaður lést við Hrafntinnusker Innlent Óteljandi skiptin sem lögregla hefur þurft að vísa sömu mönnum út Innlent Bátar brenna í Bolungarvík Innlent