Á meðal þeirra bíla eru Rolls Royce Dawn, Ferrari 488, tveir Pagani Huayra, Spyker C8, Ariel Atom 3, Bentley Continental GT blæjubíll, Bugatti Veyron, Morgan bíll á þremur hjólum og einn Rolls Royce enn, sem ekki er vitað af hvaða gerð er. Þá fylgir húsinu einnig 1936 árgerðin af Mercedes Benz 540K.
CNBC sjónvarpsstöðin metur t.d. hvern Pagani bílanna á 2 milljónir dollara, en Benz bílinn á 15 milljónir dollara. Það er þó ef til vill mikið vanmat því síðasta eintak af slíkum bíl fór á 11.770.000 dollara hjá uppboðshúsi Gooding & Company á Pebble Beach árið 2012.
Forvitnilegt verður að sjá hvort mikil eftirspurn sé eftir þessu húsi, en vissulega fæst ýmislegt góðgæti fyrir aurinn. Hrikalega flott myndskeið af aðbúnaði í húsinu má sjá hér að ofan. Annar eins lúxus hefur líklega óvíða sést.

