Ford ætlar að nær tvöfalda jeppa- og jepplingaflóruna Finnur Thorlacius skrifar 8. febrúar 2017 13:45 Lincoln Navigator tilraunabíll sem gæti farið óbreyttur í framleiðslu árið 2018.
Árið 2020 ætlar Ford að bjóða 13 mismunandi gerðir af jeppum og jepplingum, en í dag býður Ford 7 slíka bíla. Þetta er nánast tvöföldun á framboði slíkra bíla á aðeins 3 árum. Með þessu hyggst Ford svara þeirri miklu eftirspurn sem eftir svona bílum er. Í Bandaríkjunum voru 64% allra seldra bíla í janúar á þessu ári jeppar, jepplingar eða pallbílar og eiga fólksbílar undir högg að sækja, nema minnstu gerðir þeirra. Nú þegar er búið að samþykkja þrjár nýjar gerðir af sex í höfuðstöðvum Ford. Búast má við að það sama gerist hjá General Motors og Chrysler. Ford ætlar að auki að kynna nýja kynslóð Expedition jeppans stóra og verður hann að miklu leiti smíðaður úr áli og mun léttast við það um 150 kíló. Ford ætlar einnig að endurvekja til sögunnar Ford Bronco jeppann og fer hann í framleiðslu á árinu 2019. Þá ætlar Ford einnig að kynna rafmagnsdrifinn jeppling með tæplega 500 km drægni og verður hann einnig kynntur árið 2019. Búast má við að hinar gerðirnar sem Ford kynnir verði smærri jepplingar, jafnvel einn sem byggður verður á næstu kynslóð Focus fólksbílsins og því fremur lítill og jafnvel annan sem byggður verður á hinum enn smærri Fiesta fólksbíl. Ford ætlar einnig að kynna nokkrar gerðir jeppa og jepplinga frá undirframleiðandanum Lincoln, en það er lúxusbílaarmur Ford. Munu þar fara endurhannaður Lincoln jeppi og bílar að nafni MKC, MKX og MKD. Þá verða kynntar nýjar kynslóðir Ford Escape árið 2018, Explorer árið 2019 og Edge árið 2021.
Mest lesið Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí Erlent Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Innlent Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Innlent Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent „Dýrlegt veður eins langt og séð verður“ Veður Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent