Steve Olsvig Sandgreen, formaður ungliðahreyfingar grænlenska jafnaðarmannaflokksins, Siumut, segir að Grænland þurfi að sýna ábyrgð og byrja að taka á móti flóttamönnum.
Hann tekur fram að Grænlendingar glími við vandamál í sínu eigin landi en það geri allar þjóðir. Sýna þurfi samúð og hjálpa þeim sem verr eru staddir.
Slík tillaga hefur áður verið borin fram á Grænlandi en fyrrverandi stjórnvöld höfnuðu henni.
Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Vill flóttamenn til Grænlands
Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar