Kasper Schmeichel gerði það í gær sem pabba hans tókst aldrei Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. febrúar 2017 11:15 Kasper Schmeichel og Peter Schmeichel. Vísir/Samsett/Getty
Kasper Schmeichel, markvörður ensku meistaranna í Leicester City, fékk í gær á sig sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni en hann var búinn að halda hreinu í fyrstu fjórum leikjum sínum. Kasper Schmeichel þurfti að sækja boltann tvisvar í markið sitt í 2-1 tapi Leicester á útivelli í gærkvöldi á móti Sevilla í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum. Kasper Schmeichel hafði haldið hreinu í fyrstu fjórum leikjum sínum í Meistaradeildinni og þegar Pablo Sarabia skoraði hjá honum á 25. mínútu í gær var Kasper búinn að spila í 385 mínútur í Meistaradeildinni án þess að fá á sig eitt einasta mark. Það er fróðlegt að vera Kasper Schmeichel saman við föður hans Peter Schmeichel sem lék sína fyrstu leiki í Meistaradeildinni með Manchesster United haustið 1994. Peter Schmeichel var búinn að fá á sig mark eftir aðeins 27 mínútur og hann fékk alls á sig fimm mörk á fyrstu 385 mínútum sínum í Meistaradeildinni. Fyrsta markið á Peter í Meistaradeildinni skoraði Stefan Pettersson leikmaður sænska liðsins IFK Göteborg. Kasper Schmeichel afrekaði líka annað í gær sem Peter Schmeichel náði aldrei á sínum Meistaradeildarferli. Kasper varði þá vítaspyrnu frá Sevilla-manninum Joaquin Correa. Vítið kom strax á 14. mínútu og Kasper Schmeichel var þá ekki enn búinna að fá á sig sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni. Það mark kom reyndar aðeins ellefu mínútum síðar en Sevilla yfirspilaði Leicester-liðið í fyrri hálfleiknum.
Enski boltinn Fótbolti Meistaradeild Evrópu Mest lesið Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 92-91 | Haukar Íslandsmeistarar 2025 Körfubolti „Við ætluðum ekki að tapa þremur leikjum í röð“ Körfubolti Myndaveisla: Haukar Íslandsmeistarar eftir ótrúlegan oddaleik Körfubolti „Að lokum var það betra liðið sem vann“ Körfubolti Kvennalið Everton mun spila á Goodison sem verður ekki rifinn Enski boltinn Stendur ekki steinn yfir steini hjá Orra-lausu Sociedad Fótbolti Tatum með slitna hásin Körfubolti Einn besti leikmaður KR frá næsta mánuðinn hið minnsta Íslenski boltinn Kristinn Gunnar sigurvegari Bakgarðshlaupsins í Öskjuhlíð 2025 Sport Man City sagt hafa lagt fram „mega“ tilboð í Wirtz Enski boltinn Fleiri fréttir Kvennalið Everton mun spila á Goodison sem verður ekki rifinn Stendur ekki steinn yfir steini hjá Orra-lausu Sociedad Þór komið áfram eftir öruggan sigur á Suðurlandi Man City sagt hafa lagt fram „mega“ tilboð í Wirtz Einn besti leikmaður KR frá næsta mánuðinn hið minnsta Víðir og Reynir ekki í eina sæng Logi á leið í burtu en ekki til Freys Markverði Víðis boðið til Real Madrid „Agndofa við að sjá þetta allt“ Sonur Ancelottis orðaður við Rangers Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast Uppbótartíminn: „Ég hef miklar áhyggjur af þeim“ Dæmir úrslitaleik Evrópudeildar þrátt fyrir umdeilda fortíð Amorim gefur í skyn að hann fari frá Man Utd breytist kúltúrinn ekki Alonso tekur við Real fyrir HM félagsliða Þróttur skoraði sex og flaug áfram Valur marði Fram í framlengingu Íslendingaliðið sló óvænt stórlið Bodø/Glimt úr bikarnum Tindastóll, FH og HK áfram í bikarnum Leiður að heyra púað á vin sinn: „Getur ekki sagt fólki hvernig því á að líða“ Mikael Egill spilaði allan leikinn þegar Venezia komst upp úr fallsæti Hafa notað sama byrjunarliðið í öllum leikjunum Ancelotti tekur við Brasilíu Fjölskylda Glódísar sá hana taka við meistaraskildinum Neyddust til þess að sofa á æfingasvæðinu Áttar sig ekki á Stjörnunni: „Bíð bara eftir því að Garpur poppi þarna upp“ Hafa unnið FH tólf sinnum í röð Beckham reiður: Sýnið smá virðingu Hrósuðu Alexander: „Varð ekkert var við það að þarna væri fimmtán ára strákur inni á vellinum“ Þeir bestu (60.-51. sæti): Himnasending frá Skotlandi, Sölvi Helgason íslenska boltans og tíur af guðs náð Sjáðu skrípamörkin í Víkinni og öll mörkin úr sjöttu umferðinni Sjá meira
Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast
Þeir bestu (60.-51. sæti): Himnasending frá Skotlandi, Sölvi Helgason íslenska boltans og tíur af guðs náð