Innlent

Dæmdir til að greiða þrota­búi Milestone 5 milljarða

Birgir Olgeirsson skrifar
Karl Wernersson.
Karl Wernersson. Vísir/GVA

Karl Emil Wernersson, Steingrímur Wernersson og Guðmundur Ólason voru í dag dæmdir til að greiða þrotabúi Milestone 5,1 milljarð króna. Milestone var í eigu bræðranna Karls og Steingríms ásamt systur þeirra Ingunni Wernersdóttur. Málið í dag snerist um kaup þeirra bræðra á eignarhlut Ingunnar í Milestone, sem þeir létu Milestone greiða fyrir.

Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur kemur fram að eignir Milestone ehf. rýrnuðu verulega í kjölfar hrunsins haustið 2008. Félagið var tekið til gjaldþrotaskipta í september árið 2009 en í í framhaldinu fyrirskipaði skiptastjóri þrotabús félagsins rannsókn á bókhaldi og rekstri Milestone ehf. síðustu tvö árin fyrir frestdag.

Endurskoðunarfyrirtækið Ernst & Young annaðist rannsóknina en í henni kom í ljós að verulegar fjárhæðir hefðu verið greiddar af reikningi Milestone ehf. til Ingunnar með fjölda greiðslna á árunum 2006 til 2007. Samtals hafi greiðslur numið 5,1 milljarði króna.

Í stefnu þrotabús Milestone, sem var gegn bræðrunum Karli og Steingrími, systur þeirra Ingunni og Guðmundi Óla, var aðallega gengið út frá því að greiðslurnar hafi verið lán til Ingunnar. Hafi uppsöfnuð skuld hennar í lok árs 2006 verið aflétt með færslu í bókhaldi félagsins með því að krafa sömu fjárhæðar var mynduð í bókhaldinu á félagið Milestone Import Export Ltd. Nam sú fjárhæð 2,7 milljörðum króna í árslok 2006. Sama hafi verið gert í árslok 2007, en þá kvað þrotabú Milestone skuld Ingunnar hafa numið 2,4 milljörðum króna.

Þrotabú Milestone gekk aðallega út frá því að fjárgreiðslurnar fælu í sér lán til Ingunnar en jafnframt var tekið fram að svo virtist sem greiðslurnar gætu mögulega verið liður í kaupum Karls og Steingríms á hlutum Ingunnar í Milestone ehf. og tengdum félögum.

Þeir Karl og Steingrímur höfðu áður verið dæmdir til fangelsisvistar í Hæstarétti Íslands vegna þessa gjörnings í en í þeim dómi kom fram að þeir hefðu látið Milestone ehf. efna samninga þeirra við Ingunni og greitt henni rúma fimm milljarða króna.

Dómur Hæstaréttar var kveðinn upp í apríl síðastliðnum en þar var Karl dæmdur til þriggja og hálfs árs fangelsisvistar, Guðmundur Ólason, fyrrverandi forstjóri Milestone, til þriggja ára fangelsisvistar og Steingrímur til tveggja ára fangelsisvistar.

Í málinu sem Héraðsdómur Reykjavíkur felldi dóm í, í dag, hafði Ingunni Wernersdóttur einnig verið stefnt en hún var sýknuð af kröfunni.

Lesa dóminn hér.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×