Eddie Alvarez, fyrrum heimsmeistari í léttvigt UFC, er gáttaður á því að Nate Diaz hafi hafnað því að berjast við sig.
Alvarez hefur ekki barist síðan Conor McGregor pakkaði honum saman í nóvember og tók af honum beltið.
„Hann er kominn á peningabragðið og er nú breyttur maður,“ sagði Alvarez um Diaz. Diaz barðist tvisvar við Conor og þénaði ansi vel á því.
Hann hefur líka sagt að hann komi ekki aftur í búrið nema hann fá vel greitt. UFC hefur ekki enn boðið honum þá peninga sem hann vill fá.
„Ég var alveg pottþéttur á því að hann vildi berjast við mig. Hann reif mikinn kjaft við mig í Mexíkó árið 2015 og er alltaf með stæla við mig er við hittumst.“
Alvarez heldur því áfram að bíða eftir andstæðingi. Hann fær ekki bardaga aftur við Conor strax en Tony Ferguson fær væntanlega að berjast við Conor um léttvigtarbeltið þar sem Khabib Nurmagomedov gat ekki barist við hann um síðustu helgi.
Peningarnir hafa breytt Nate Diaz
Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Mest lesið

Sniðganga var rædd innan HSÍ
Handbolti




Brady óskaði Willum, Alfonsi og félögum til hamingju
Enski boltinn




Afturelding mætir Val í undanúrslitum
Handbolti
