Varð þetta til þess að fyrirtæki á borð við McDonald’s, Audi og AT&T eru tímabundið hætt að auglýsa á síðunni. YouTube hefur í kjölfarið breytt stefnu sinni í auglýsingamálum og býður auglýsendum upp á að velja hvort þeir auglýsi við öll myndbönd, myndbönd sem merkt eru örugg eða velja að undanskilja myndbönd sem innihalda fordóma, umræðu um stjórnmál, blótsyrði og þar fram eftir götunum.

Eins og áður segir lýsa margir sem halda úti rásum á síðunni yfir þungum áhyggjum af stöðunni. Þannig sagði Philip DeFranco, sem er með fimm milljónir fylgjenda, að stór hluti vandamálsins væri skortur á gagnsæi. „Við fáum ekki að sjá hvernig myndböndin okkar eru merkt,“ sagði DeFranco í nýlegu myndbandi.
Hjónin Ethan og Hila Klein, sem halda úti rásinni h3h3Productions og eru með fjórar milljónir fylgjenda, eru svartsýn í nýlegu myndbandi. „Við vorum að vona að þetta færi að lagast, og það hefur gert það fyrir ýmsa. En fyrir okkur er þetta að versna. Við sjáum ekki fyrir okkur að við getum starfrækt rásina áfram í óbreyttri mynd.“

Hef ég áhyggjur? Algjörlega. Það var hryllilegt að sjá tekjur mínar hríðlækka um mánaðamótin.Þá segir Steven Williams, sem heldur úti rásinni Boogie2988 og hefur fjórar milljónir fylgjenda, að auglýsendur treysti því ekki lengur að þeir hagnist á því að auglýsa á YouTube. „Frá því Google keypti YouTube hefur síðan verið byggð á auglýsingum. Þannig hefur YouTube aflað tekna og þannig hef ég aflað tekna,“ sagði Williams.
Hank Green, annar helmingur rásarinnar Vlogbrothers sem hefur þrjár milljónir fylgjenda, segir tekjur allra sem halda úti rásum á YouTube hafa minnkað. „Hef ég áhyggjur? Algjörlega. Það var hryllilegt að sjá tekjur mínar hríðlækka um mánaðamótin.“