Geely hefur hreinlega safnað að sér bílamerkjum því auk Volvo, Lotus og Proton þá á Geely einnig hið nýstofnaða Lynk & Co. Geely ætlar að gera það sama með Lotus og það gerði með Volvo merkið, þ.e. að útvega fyrirtækinu nægt fjármagn til að þróa nýja bíla frá grunni og að reisa það upp úr öskustónni. Það eru því bjartari tímar framundan hjá Lotus en á undanförnum árum þar sem Lotus hefur glímt við fjárhagsvanda og hefur ekki haft efni á mikilli þróunarvinnu og fátt nýtt komið frá fyrirtækinu að undanförnu.
Líkt er með malasíska bílaframleiðandann Proton og Lotus, þar ekki hefur gengið alltof vel á undanförnum árum og fyrirtækið er langt frá því að framleiða þann fjölda bíla sem verksmiðjur fyrirtækisins geta framleitt, eða 400.000 bíla á ári. Með því að innlima Proton í þessa stóra bílasamstæðu sem er að myndast með þessum tveimur kaupum gæti það breyst. Búast má við því að tækni allra framleiðendanna verði miðlað og með því fæst aðgangur að mikilli þekkingu, líklega öllum fyrirtækjunum til góða.
