Vísindamenn segja hækkun sjávar gerast þrefalt hraðar en 1990 Samúel Karl Ólason skrifar 23. maí 2017 14:04 Bráðnun heimskautaíss hefur hraðað hækkun sjávarborðsins. Vísir/GEtty
Forsvarsmenn nýrrar rannsóknar segja hækkun sjávar hafa aukið hraðan verulega á undanförnum árum. Allt í allt sé hækkunin nú um þrisvar sinnum hraðari en hún var árið 1990. Vísindamennirnir sem standa að rannsókninni segja að árið 1990 hafi sjávarborðið hækkað um 1,1 millimetra á ári, en á árunum 1993 til 2012 var hækkunin 3,1 millimetri á ári. Sönke Dangendorf, sem leiddi rannsóknina, segir í samtali við Washington Post að á síðustu öld hafi sjávarborðið hækkað vegna bráðnunar jökla og að rúmmál sjávar hafi aukist vegna hlýnunar. Nú sé hins vegar bráðnun heimskautaísa að bætast við. Vísindamennirnir lentu í ákveðnum vandræðum við mælingarnar, en elstu marktæku gervihnattamyndirnar sem þeir fundu voru frá árinu 1990. Eldri gögn fengust með notkun hafstraumamæla sem komið var fyrir víða um heiminn. Þá gerir sig og ris lands mælingar erfiðar á sumum stöðum auk annarra þátta. Þeir fundu þó leiðir fram hjá því með því að meðal annars samtvinna gervihnattamyndir og eldri mælingar. Dangendorf segir að hækkun sjávarborðs muni velta á því hve vel gengur að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda. Ljóst sé að hækkunin muni halda áfram en hægt sé að draga úr henni.
Vísindi Mest lesið „Þetta mál hélt fyrir mér vöku í tvo mánuði“ Innlent Fangi lést á Litla-Hrauni Innlent Lentu í dularfullum símatruflunum í Bratislava fyrir fimm árum Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Fólk dvelji ekki í herbergjum með glugga í átt að Eyrarfjalli Innlent Þurftu að búa í næstu götu við morðingja bróður síns Innlent „Þetta er auðvitað grafalvarlegt mál“ Innlent Dæmdur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás Innlent Forsætisráðherra segir málið hugarburð, Píratar vilja rannsókn Innlent „Hefði verið ágætt að fresta þessu veðri fram yfir áramót“ Innlent Fleiri fréttir Aldraður barnalæknir dæmdur í fangelsi fyrir að vanvirða herinn Tugir látnir eftir að bíl var ekið inn í þvögu fólks í Kína Áfrýjun tólf ára fangelsisdóms vegna sjö þúsund króna hafnað Fjölgar hratt í ríkisstjórn Trumps Ganga til kosninga í febrúar Vörpuðu sprengjum á hópa tengda Íran í Sýrlandi Aðeins einn af tíu segist myndu tilkynna ofbeldið að fenginni reynslu „Ákveðinn árangur“ hafi náðst í viðræðum um vopnahlé í Líbanon Fimmtíu þúsund hermenn sagðir undirbúa gagnsókn í Kúrsk Búinn að velja sendiherra og „landamærakeisara“ Sakar Orbán um „ungverskt Watergate-hneyksli“ Vill losna við tálma úr vegi sínum Scholz tilbúinn að láta undan þrýstingi um vantraust Ishiba áfram forsætisráðherra þrátt fyrir kosningatap Ræddi við Pútín og varaði við stigmögnun Hátt í 400 kynlífsmyndböndum lekið í mögulegu samsæri Aldrei jafn margar drónaárásir Trump vann öll sveifluríkin Mestu virkjanaframkvæmdir í sögu Grænlands framundan Óeirðir í Valensía og kallað eftir afsögn ráðamanna „Ég bjóst aldrei við að þetta myndi gerast“ Ákærður fyrir ráðabrugg um að ráða Trump af dögum Fundu morðingja puttaferðalangs fimmtíu árum síðar Samstaða í Færeyjum um að bjóða út Suðureyjargöng Hverfa aftur til fortíðar vegna gervihnattatruflana Rússa Pútín óskar Trump til hamingju Yfirmaður COP29 sagður hafa reynt að selja jarðefnaeldsneyti Ráðist á ísraelska stuðningsmenn í Amsterdam Trump velur starfsmannastjóra úr innstu röðum Spennuþrungin barátta um fulltrúadeildina Sjá meira