
Sú efsta á heimslistanum bjartsýn

Hún er fyrsti kylfingurinn á LPGA mótaröðinni í ár til að vinna fleiri en eitt mót. Hún vann einnig fyrsta risamót ársins, ANA Inspiration, eftir bráðabana við Lexi Thompson frá Bandaríkjunum.
Ryu er eðlilega bjartsýn fyrir KPMG LPGA Championship en sagði að flatirnar á Olympia Fields vellinum væru virkilega erfiðar við að eiga og mikilvægt að eiga ekki pútt niður halla á flötunum.
Með lengdina á vellinum sagði hún að oft væri leikið á lengri völlum en samt væri karginn meiri hér og því mikilvægara að hitta brautir í upphafshöggum. Hún hafði einnig orð á því að erfiðir vellir hafi ekki verið vandamál hjá henni hingað til þar sem hún hafi bætt teighöggin mikið og væri síður í vandræðum eftir þau.
Hún hafði einnig orð á því að Inbee Park meistari á PGA Championship mótinu 2013, 2014 og 2015 hafi hjálpað henni mikið við að bæta ákvarðanatöku á vellinum.
So Yeon Ryu hefur leik 18:40 í dag. Sýnt verður frá mótinu á Golfstöðinni í dag og hefst útsending klukkan 16:30.
Tengdar fréttir

Ólafía í góðum félagsskap á PGA-meistaramótinu
Phil Mickelson heilsaði uppi á þá kylfinga sem eru styrktir af KPMG, þeirra á meðal Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur.

Faðir Ólafíu segir dáleiðslu hafa reynst henni vel í golfinu
Kristinn J. Gíslason, faðir golfstjörnunnar Ólafíu Þórunnar Kristinsdóttur, segir andlegu hlið golfsins mjög mikilvæga. Hann hefur notfært sér dáleiðsluþekkingu sína og hjálpað kylfingum, þar á meðal Alfreði syni sínum, og auðvitað Ólafíu.

Meira fé og fleiri stig í boði fyrir Ólafíu á risamótinu
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir keppir fyrst allra íslenskra kylfinga á risamóti um næstu helgi. Hún fékk fínt veganesti í Arkansas um helgina.

Vil sýna hvað ég spila vel
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir heldur áfram að vera brautryðjandi íslenskra kylfinga þegar hún hefur í dag keppni á stórmóti í golfi, fyrst íslenskra kylfinga. Hún hefur fundið fyrir ofþreytu eftir álag síðustu vikna.

Ólafía spilar á afar krefjandi velli
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur leik á KPMG PGA Championship mótinu í dag.

Ólafía: Tilfinningin er æðisleg
Stöð 2 Sport er mætt til Chicago og hitti Ólafíu Þórunni Kristinsdóttir degi áður en hún brýtur enn eitt blaðið í íslenskri golfsögu.

Ólafía Þórunn fær boð á risamót
Ólafía Þórunn Krisinsdóttir, fyrst allra íslenskra kylfinga á risamót.

Ólafía: Phil er alger snillingur
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir segir að Phil Mickelson hafi lag á því að ná til fólks.