Stjörnur Game of Thrones þáttana komu saman á bláum dregli á miðvikudagskvöld við frumsýningu sjöundu seríu. Leikararnir voru allir í sínu fínasta pússi.
Aðdáendur þáttana bíða spenntir eftir nýju seríunni, en hún verður frumsýnd á Stöð 2 aðfaranótt mánudags, 17 júlí kl. 01:00, en það er á sama tíma og hún er frumsýnd í Bandaríkjunum. Þátturinn verður svo endursýndur á mánudagskvöldið 18. júlí.