„Bíllinn var frábær í dag. Við tókum stórt skref fram á við. Ég hef alltaf verið hrifinn af þessari braut og þegar bíllinn virkar svona vel þá smellur allt saman. Við náðum að tryggja okkur fremstu ráslínuna sem er ótrúlegt. Það breyttist ekkert þannig í nótt. Við vinnum bara hörðum höndum að því að bæta okkur sem lið. Helsta verkefnið er á morgun, það er ekkert unnið með þessum ráspól í dag.,“ sagði Vettel eftir tímatökuna.
„Loka hringurinn byrjaði vel og endaði vel en hann fór í vaskinn í miðjunni. Ég bremsaði á kanti á leiðinni inn í hlekkina og bíllinn missti grip þar og ég tapaði tíma. Hann dugði þó til að ná öðru sæti. Mér fannst ég hafa þetta en það klúðraðist,“ sagði Kimi Raikkonen eftir æfinguna. Hann ræsir annar á morgun á Ferrari bílnum.
„Ferrari menn hafa verið fljótir alla helgina. Þeir voru einfaldlega betri í dag. Við sem lið þurfum að vinna í því að láta bílinn okkar henta betur á brautum sem þessum,“ sagði Valtteri Bottas eftir tímatökuna þar sem hann varð þriðji á Mercedes bílnum.

„Bíllinn var nokkuð góður og hringirnir voru góðir svona almennt nema í þriðju lotunni. Það er ekki hægt að taka fram úr hér svo á morgun verður þetta einhver lestarferð bara nema eitthvað komi uppá,“ sagði niðurlútur Lewis Hamilton sem varð fjórði á Mercedes bílnum.
„Bílarnir voru á erfiðum stað í morgun. Við vorum sannfærðir um að við hefðum átt að geta verið í baráttunni um ráspólinn. Ræsingin er sennilega besta tækifærið til að taka fram úr á morgun,“ sagði Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes.
„Við unnum í bílnum í gærkvöldi og það skilaði sér. Við sendum Giovinazzi í akstursherminn heima á Ítalíu í nótt að prófa breytingarnar. Þetta spilaði allt saman í þá átt að setja bílinn vel upp fyrir daginn í dag,“ sagði Maurizio Arrivabene, liðsstjóri Ferrari.