Talsmaður hersins segir að ekki sé búið að kynna Kim Jong-Un slíka áætlun en það verði gert. Eftir það geti árásin verið framkvæmd hvenær sem er. Samkvæmt Yonhap fréttaveitunni frá Suður-Kóreu stendur til að kynna einræðisherranum áætlunina á næstunni.
Fyrr í kvöld sagði Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, að hótunum Norður-Kóreu yrði mætt með „eldi og heift“. Að heimurinn hefði aldrei séð annað eins.
Leyniþjónustur Bandaríkjanna eru sagðar telja að eldflauga- og kjarnorkuvopnaáætlanir Norður-Kóreu sé komnar lengra á veg en áður hefur talið og að Norður-Kóreumenn hafi þegar framleitt kjarnorkuvopn sem koma mætti fyrir í langdrægri eldflaug.
Sjá einnig: Segist tilbúinn til að mæta Norður-Kóreu með „heift“
Í frétt Yonhap kemur einnig fram að talsmaður hersins hafi sagt nauðsynlegt fyrir Norður-Kóreu að hefta notkun herstöðvanna á Guam. Á undanförnum vikum hefur B-1B sprengjuþotum verið flogið yfir Kóreuskagann í kjölfar eldflaugatilrauna Norður-Kóreu. Sprengjuþoturnar hafa burði til að bera kjarnorkuvopn.
Experts say North Korea still needs significant technological gains in order to become a full-fledged nuclear threat https://t.co/ozQxGjQ0CC
— AFP news agency (@AFP) August 8, 2017