Veiði

20 laxar úr sama veiðistaðnum á einum morgni

Karl Lúðvíksson skrifar
Mynd: www..ranga.is
Eystri Rangá hefur verið að taka all verulega við sér eftir heldur rólega byrjun en staðan í henni núna virðist vera ansi góð.

Það berast í það minnsta líflegar fréttir frá bökkum hennar og veiðitölurnar í henni ásamt systuránni eru að rjúka upp á hverjum degi.  Vinsælir veiðistaðir í ánni eru að gefa fína veiði og það hafa verið feykna göngur í hana sem sést oft vel á veiðinni á neðstu veiðistöðunum og þá sérstaklega á Bátsvaðinu.  Þetta er sá veiðistaður sem kemur sterkur inn þegar göngurnar mæta og laxinn tekur sitt fyrsta alvöru stopp í Eystri.  Þetta er all langur veiðistaður með háum grasbakka og skemmtilgum hraða á vatninu.  Þarna þarf ekki að nota sökkenda við góð skilyrði því á nokkrum góðum blettum liggur laxinn á þannig dýpi að flotlína dugar oft vel.

Í gærmorgun komu 20 laxar á land úr þessum eina hyl og það bara á morgunvaktinni.  Við erum ekki búin að fá tölu af kvöldvaktinni en veislan hélt að mestu leiti áfram eftir hádegi svo það verður gaman að fá fréttir af bökkum Eystri þegar líður á daginn svo ég tali ekki um að sjá hvernig vikutölurnar verða annað kvöld þegar listinn frá Landssambandi Veiðifélaga verður uppfærður á síðunni þeirra.






×