Kristján: Langar alltaf að komast aftur í bikarúrslitin Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 11. ágúst 2017 14:15 Kristján Guðmundsson, þjálfari ÍBV. Vísir
Kristján Guðmundsson hefur náð góðum árangri í bikarkeppninni á þjálfaraferlinum. Árið 2006 gerði hann Keflavík að bikarmeistara eftir 2-0 sigur á KR í úrslitaleiknum og hann fór aftur með Keflavík í úrslitaleikinn árið 2014, en þá komu KR-ingar fram hefndum. Kristján er í dag þjálfari ÍBV sem mætir FH í úrslitaleik Borgunarbikars karla á morgun. Leikurinn hefst klukkan 16.00 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. „Það er erfitt að segja hver sé lykillinn að baki góðs árangurs í bikarnum. Þetta eru leikir þar sem bara ein úrslit duga og það er sigur. Það verður að koma leikmönnum í skilning um það,“ sagði Kristján í samtali við Vísi. „Ég hef gríðarlega gaman að bikarnum. Eftir að maður upplifði þetta í fyrsta sinn þá langar manni alltaf að komast aftur í úrslitaleikinn.“Ítrekaður spurður um þjóðhátíð Eyjamenn hafa stundum gefið eftir síðari hluta sumars undanfarin ár, sérstaklega eftir verslunarmannahelgina og þjóðhátíð í Eyjum. En Kristján óttast ekki að það gerist nú. „Það hafa allir talað um þjóðhátíðarhelgina við mig, meira og minna allt tímabilið. Hvernig ég ætlaði að vinna úr henni en ég held að það hafi tekist mjög vel,“ sagði Kristján en ÍBV gerði á þriðjudag jafntefli við Víking í Fossvoginum. „Það var svolítið þreytt að ferðast í þann leik og sást örlítið á liðinu. En við tókum stig og það var það sem við þurftum á að halda, að minnsta kosti.“
Íslenski boltinn Mest lesið Kjartan Atli lætur af störfum Körfubolti Indverjar brjáluðust út í Messi og brutust inn á völlinn Fótbolti Salah lagði upp í endurkomunni en Ekitike sá um mörkin Enski boltinn „Ég held að þetta hafi ekki verið kveðjustund“ Enski boltinn Sakna Orra enn sárt og vandræðin aukast Fótbolti Mesta heillaskref ferilsins að hafa verið rekinn Enski boltinn Körfuboltakvöld í áfalli yfir vörn Álftaness: „Bara kjánalegt að horfa á þetta“ Körfubolti Dýrmætur tími með börnunum áður en alvaran tekur við Fótbolti Spara margar milljónir vegna ráðningar Rúnars Handbolti Fimmtugur og fúlskeggjaður Svíi stal senunni á HM Sport Fleiri fréttir Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Þrjár ungar KR-konur leggja skóna á hilluna Murielle elti Óskar í Garðabæinn Segir dökk ský yfir íslensku knattspyrnuhreyfingunni Rúnar sækir gamlan félaga sinn inn í þjálfarateymið Fór frá því að mæta á landsliðsæfingu í það að vera fárveikur í öndunarvél Jasmín kom til að vinna titla og er farin frá Val Framlengir við Breiðablik og nálgast fimm hundruð leikina Sjá meira